Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi, þar sem gengið er beint inn af götu, við Galtalind 16, 201 Kópavogi. Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð sem hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Eignin er snyrtileg að innan sem utan, með góðu skipulagi og björtum rýmum sem skapa notalegt heimili fyrir fjölskylduna.
Eignin er á frábærum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, grunnskóla og leikskóla.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is Lýsing eignar: Anddyri: Sérinngangur. Komið inn í anddyri, rúmgóður skápur. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Inn af anddyri er gengið inn í rúmgott þvottahús. Í þvottahúsinu er gott skápapláss og opnanlegur gluggi.
Alrými: Frá anddyri er komið inn í bjart og opið alrýmið þar sem er eldhús, borðstofa, stofa og svefnherbergisgangur. Stofan er björt með stórum gluggum og fallegu útsýni. Útgengt út á rúmgóðar, flísalagðar suð-vestur svalir. Fallegt parket er á gólfum. Frönsk hurð er milli anddyris og alrýmis.
Eldhús: Eldhúsið er rúmgott, endurnýjað að hluta á smekklegan hátt. Bakaraofn og stórt helluborð. Vaskur innfelldur í borðplötu.
Baðherbergi: Baðherbergið er með upphengdu salerni. Baðkar og sturta. Gott skápapláss. Tveir opnanlegir gluggar. Hiti er í gólfum og flísalagt er í hólf og gólf.
Barnaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergið er með góðu skápaplássi og útgengt út á svalirnar.
Geymsla: Í sameign er hjóla/vagnageymsla. Inn af sameign er sérgeymsla íbúðar sem er skráð 5,1 fm.
Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin: 2024: Baðherbergi endurnýjað, flísar, blöndunartæki, baðkar, sturtuaðstaða, komið fyrir hita í gólfi, nýjar innréttingar.
2023: Tréverk og steinn málað að utan. Skipt um ofn í stofu í lok árs.
2022: Bakaraofn, helluborð og vifta endurnýjuð í eldhúsi. Allt parket pússað og matt lakkað. Hluti eldhússkápa sprautulakkaður og skipt um allar höldur.
2018: Þak pússað, grunnað og málað. Gluggi í barnaherbergi endurnýjaður.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.