Fasteignasalan TORG Kynnir sérlega glæsilegt 5 herbergja parhús á tveimur hæðum með borðstofu og eldhúsi, stofu, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahúsi, fataherbergi, geymslu, og rúmgóðan bílskúr. Húsið er byggt 2009, skráð alls 306,8fm, þar af bílskúr 37,2fm. Bílaplan er steypt, stór afgirt tim...
Sýna meira
Fasteignasalan TORG Kynnir sérlega glæsilegt 5 herbergja parhús á tveimur hæðum með borðstofu og eldhúsi, stofu, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahúsi, fataherbergi, geymslu, og rúmgóðan bílskúr. Húsið er byggt 2009, skráð alls 306,8fm, þar af bílskúr 37,2fm. Bílaplan er steypt, stór afgirt timburverönd er fyrir framan húsið og einnig er sólpallur í neðri garð. Allar nánari upplýsingar veita Hafdís lgfs GSM: 820-2222, og/eða Sigurður lgfs GSM: 898-6106, Nánari lýsing: Komið er inn í húsið á efri hæð sem skiptist í forstofu með fallegum flísum á gólfi og góðum fataskáp. Innfeld lýsing er í mest allri eigninni parket og flísar á gólfum.Gestasalerni er á gangi, flísalagt í hólf og gólf. Gott þvottaherbergi er inn af forstofu með góðu vinnuplássi, innréttingu, vaski og rými fyrir þvottavél og þurkara. Inn af þvottahbergi er innan gengt í rúmgóðan bílskúr. Stigagangur er niður á neðri hæð í miðju rýminu. Til vinstri er rúmgott herbergi sem er í dag nýtt sem unglingaherbergi. Svalir eru út af gangi. Gólfsíðir gluggar eru á aðalrými sem er til vinstri. Borðstofan er rúmgóð með miklu útsýni. Opið er á milli borðstofu og eldhús. Eldhúsið er með góðri innréttingu, stórri Smeg gas-eldavél og háf, innbyggðri uppþvottavél og rými fyrir tvöfaldan ísskáp. Steyptur stigi er niður á neðri hæð með handriði úr gleri. Á neðri hæð er komið niður í stofu með stórum gluggum.Aðal baðbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari innréttingu og sturtu. Af gangi er útgengi út á timburverönd og garð. Stórt hjónaherbergi með fataherbergi inn af er innst á gangi, einnig er gott geymsluherbergi á ganginum. Rúmgott barnaherbergi er við hlið hjónaherbergis. Bakgarður er snyrtilegur. Timburpallur er á neðri garði með steyptum tröppum upp á efri timburpall. Bílaplan er steypt, hiti er í bílaplani. Öll lóðin hin snyrtilegasta. Húsið er í mjög góðu ásigkomulagi og hefur fengið reglulegt og gott viðhald. Hér er um að ræða glæsilegt fjölskyldu parhús á góðum stað í Hafnarfirði. Allar nánari upplýsingar veita Hafdís lgfs GSM: 820-2222, og/eða Sigurður lgfs GSM: 898-6106,