Lind fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í nánast viðhaldsfríu fjölbýlishúsi. Frábær staðsetning í barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslunarkjarna, matsölustaði, skóla og leikskóla... Sýna meira
Lind fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í nánast viðhaldsfríu fjölbýlishúsi. Frábær staðsetning í barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslunarkjarna, matsölustaði, skóla og leikskóla sem og einnig falleg útivistarsvæði.Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpsrými sem í dag er nýtt sem almennt rými, rúmgott eldhús, bjarta stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar.Rúmgóðar svalir eru til vesturs.Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjólageymslu.Stærð eignar er 96,9 fm. skv. FMR.Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 862 0880 eða Smelltu hér og fáðu söluyfirlit strax.Nánari lýsing:Forstofa: Flísalögð með fataskáp.Stofa og borðstofa: Björt og opin, parket á gólfi og útgengi út á vestursvalir.Eldhús: Parketlagt með hvítri sprautulakkaðri innréttingu frá Brúnás og grárri borðplötu. Helluborð, ísskápur og uppþvottavél eru frá Bosch og ofn er frá Electrolux.Hjónaherbergi: Parketlagt með fataskáp frá Brúnás.Svefnherbergi I: Parketlagt með fataskáp frá Brúnás.Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Hvít innrétting með handlaug og marmari á borði, hár skápur, upphengt salerni og góður sturtuklefi.Þvottahús: Flísalagt, vinnuborð og hillur.Geymsla: Er innan íbúðar (4,2 fm.), dúkur á gólfi. 2022 Hluti af þaki tekið s.s. járn og pappi.2022 Skipt um gler í svefnherbergi, suðurhlið og í eldhúsi.2019 Eldhúsinnrétting sprautulökkuð og skipt um borðplötu og blöndunartæki.2017 Nýjar gólfflísar lagðar og settur sturtuklefi í stað baðkars inni á baðherbergi.Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma. ** Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.** Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.** Frítt söluverðmat á þinni eign hér eða hjá Herdís Sölvína Jónsdóttir, sími 862 0880 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.