LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali (s: 823-2800 / ) kynna: Góða 5 herbergja (fjögur svefnherbergi) íbúð á tveimur hæðum í fallegu nýlega endurbættu fjölbýlishúsi við Fróðengi 20 í Grafarvoginum. Afar góð og fjölskylduvæn staðsetning í grennd við fjölbreytta versl... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali (s: 823-2800 / ) kynna: Góða 5 herbergja (fjögur svefnherbergi) íbúð á tveimur hæðum í fallegu nýlega endurbættu fjölbýlishúsi við Fróðengi 20 í Grafarvoginum. Afar góð og fjölskylduvæn staðsetning í grennd við fjölbreytta verslunar og þjónustumiðstöðina Spöngina. Leik-, grunn- og framhaldsskóli í göngufæri ásamt íþrótta- og afþreyingamiðstöðinni í Egilshöll. Eigninni fylgir merkt bílastæði framan við húsið - tvennar svalir - glæsilegt útsýni - fjögur svefnherbergi - tvö baðherbergi. Húsið var málað að utan árið 2021 ásamt því að skipt var um teppi á sameign. Íbúðin er á tveimur hæðum og er birt stærð séreignar samtals 145,4 fm. Íbúðarhlutinn er 138,8 fm (neðri hæðin er 94,9 fm og efri hæðin er 43,9 fm og einnig fylgir íbúðinni geymsla á fyrstu hæðinni sem er skráð 6,6 fm).Sækja söluyfirlit strax Neðri hæðin skiptist í anddyri, stofu / borðstofu, rúmgott eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi til viðbótar ásamt baðherbergi og þvottahúsi.Íbúðinni fylgir sér geymsla ásamt aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Nánari lýsing neðri hæðar: Forstofa með fataskáp. Frá forstofu tekur við stofa og borðstofa, glæsilegt útsýni frá þessu rými. Eldhús með kirsuberjainnréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa. Gangur / hol með parketi á gólfi. Tvö svefnherbergi og eru þau bæði með fataskáp. Frá öðru svefnherberginu er gengið út á suðursvalir. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, sér sturtuklefi og baðkar. Nánari lýsing efri hæðar: Steyptur stigi á milli hæða. Parketlagður gangur. Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi, tveir lausir fataskápar. Frá öðru svefnherberginu er gengið út á suðursvalir með glæsilegu útsýni. Baðherbergi með flísum á gólfi. Þvottahús með flísum á gólfi. Þessi hæð er töluvert undir súð og er því gófflöturinn mun stærri en uppgefnir fermetrar segja til um. Allar nánari upplýsingar veita:Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasalií félagi FF / / 823-2800Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasalií félagi FF / / 823-2600Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA