Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög falleg tveggja herbergja íbúð við Friggjarbrunn 1. Eignin er skráð 86,5 fm og skiptis í forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og tvær geymslur ásamt stórum sólpalli og bílastæði í bílageymslu. Allar nánari upplýsingar veitir söluful... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög falleg tveggja herbergja íbúð við Friggjarbrunn 1. Eignin er skráð 86,5 fm og skiptis í forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og tvær geymslur ásamt stórum sólpalli og bílastæði í bílageymslu. Allar nánari upplýsingar veitir sölufulltrúi, Darri Örn Hilmarsson, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: og/eða Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali. Nánari lýsing: Komið er inn í góða forstofu. Frá forstofu er sér þvottahús til vinstri og baðherbergi til hægri. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, sturtu og upphengdu salerni. Þvottahúsið er flísalagt með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhúsið er mjög stór með góðri ítalskri innréttingu frá Aran Cucine, bakstursofni, helluborði og viftu frá Electrolux. Stofa og borðstofa er rúmgóð, opin og björt með útgengi út á 37 fm sólpall sem snýr í suð-vestur. Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskápum. Eigninni fylgir tvær geymslur. Önnur er 5 fm og er staðsett beint fyrir framan íbúðina og hin er 7,7 fm og er staðsett í kjallaranum. Einnig fylgir eigninni bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu. Harðparket er á gólfum íbúðarinnar fyrir utan votrými en þar eru flísar. Íbúðin er með innfeldri lýsingu að hluta, gólfhita og danfoss stýringu. Um er að ræða einstaklega rúmgóða og bjarta eign á frábærum stað við Úlfarsárdal. Eitt af einkennum hverfisins er mikil nánd við náttúruna og í göngufæri við hverfið eru náttúruperlur eins og Úlfarsfellið, Reynisvatn, Hafravatn og Hólmsheiðin. Allar nánari upplýsingar veitir sölufulltrúi, Darri Örn Hilmarsson, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: og/eða Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Fletta í fasteignalista