Valborg kynnir Freyjubrunn 20:Um er að ræða fallega tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð hússins, skráð 71,1fm, ásamt stæði í bílakjallara og 15,3 fm svalir.Athugið að íbúðin verður ekki sýnd fyrr en á opnu húsi og ekki verður tekið við tilboðum fyrr en eftir opið hús.Nánari lýsing: Anddyri með góðu ... Sýna meira
Valborg kynnir Freyjubrunn 20:Um er að ræða fallega tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð hússins, skráð 71,1fm, ásamt stæði í bílakjallara og 15,3 fm svalir.Athugið að íbúðin verður ekki sýnd fyrr en á opnu húsi og ekki verður tekið við tilboðum fyrr en eftir opið hús.Nánari lýsing: Anddyri með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.Eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými. Þar er parket á gólfi. Í eldhúsi er gott skápapláss og flísar milli efri og neðri skápa. Útgengt er úr stofu út á suður svalir. Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.Baðherbergi er flísalagt með sturtu, uppáhengdu klósetti og handklæðaofni. Góð þvottaaðstaða er inná baði þar sem bæði er pláss fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.Svalir snúa til suðurs og eru mjög rúmgóðar, skráðar 15,3 fm. Sér geymsla fylgir íbúðinni og er birt stærð geymslu 6,8 fm.Bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni merkt B08.Nánari upplýsingar veitir Kristinn Sævar Magnússon löggiltur fasteignasali, í síma 8455433 eða .Um er að ræða góða staðsetningu þar sem einstakar náttúruperlur eru í göngufæri, Úlfarsárdalur, Úlfarsfell, Reynisvatn o.fl.Fjölmargir göngu- og hjólastígar bjóða uppá fjölbreytta möguleika til útivistar og tengja saman hverfin í nágrenninu.Dalskóli er staðsettur á fallegum stað neðst í dalnum. Í dalnum er einnig félagssvæði Fram.Húsið er steinsteypt, stendur á steinsteyptum grunni og skiptist í kjallara og tvær hæðir. Á húsinu er bæði flatt og bogadregið þak.Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign, engin skuldbinding. Kynntu þér málið á www.verdmeta.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, tilseljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hlutafasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegumkaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.