Pálsson Fasteignasala kynnir:
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í vandaðri fjölbýlishúsabyggð við Framnesveg 40 í gamla Vesturbænum. Húsið er byggt í anda byggingana í kring en í samræmi við nútímaþarfir og kröfur. Íbúðin er björt og nýtist einstaklega vel með norð-vestursvölum.Íbúðin er skráð 52,8 fm hjá HMS, þar af er íbúðarrými 49,7 fm og sérgeymsla í kjallara 3,2 fm.* Byggingarár 2019
* Allar innréttingar frá HTH
* Innbyggð uppþvottavél og ísskápur
* Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inná baði
* Frábær staðsetning í gamla VesturbænumNánari lýsing:
Forstofa/hol með fataskápum.
Stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými með útgengi út á norð-vestursvalir. Eldhús er með fallegri dökkri HTH innréttingu, góðu skápaplássi og vönduðum innbyggðum tækjum.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með snyrtilegri HTH innréttingu, vegghengdu salerni, walk-in sturtu með glerskilrúmi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í kjallara.
Snyrtileg sameign og frágengin lóð
Um er að ræða eftirsóttan stað þar sem stutt er í miðbæinn, Granda, skóla, þjónustu, kaffihús og útivistarsvæði. Nánari upplýsingar veita:Evert Guðmundsson Lgf. í síma nr 823-3022 eða evert@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.