Íbúð
Íbúð 102 við Framnesveg 40 í 101 Reykjavík. Skráð á einu fastanúmeri. Þrjár aðskildar einingar: 45,5 fm íbúð á 1. hæð með sameiginlegum inngangi, 49,7 fm íbúð í kjallara með sérinngangi og sérafnotareit, 29,0 fm studió íbúð í bakhúsi með sérinngangi. Möguleiki á sameiningu tveggja eininga í 95,2 fm íbúð á tveimur hæðum.
Stofa
Í öllum einingum er stofa í opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfum í 1. hæðar- og kjallaraíbúð.
Eldhús
Í 1. hæðar- og kjallaraíbúð: Eldhúsinnrétting með efri og neðri skápa, innbyggðum ísskáp með frysti, innbyggðri uppþvottavél, bökunarofni, helluborði með kolasíðu viftu og vaski. Í studíó: Góð eldhúsinnrétting með þvottavél.
Svefnherbergi
Í 1. hæðar- og kjallaraíbúð: Eitt svefnherbergi, mjög rúmgott með parket á gólfum og fataskáp. Studió: Ekki tilgreint sérstakt svefnherbergi.
Baðherbergi
Í 1. hæðaríbúð: Baðherbergi með opnanlegum glugga, flísum á veggjum og gólfi, sturtu, upphengt salerni, handlaug og speglaskápi. Í kjallaraíbúð: Baðherbergi með flísum á hluta veggja og á gólfi, sturtu, upphengt salerni, handklæðaofni, handlaug og spegil. Tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Í studíó: Bað með flísum, sturtu og upphengt salerni.
Þvottahús
Í 1. hæðaríbúð: Geymsla/Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingum fyrir þvottavél og þurrkara. Í kjallaraíbúð: Tengi og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inn af sturtu í baðherbergi. Í studíó: Þvottavél í eldhúsinu.
Geymsla
Í 1. hæðaríbúð: Geymsla/Þvottahús. Í kjallaraíbúð: Rúmgóð geymsla með harðparket á gólfi. Í bakhúsi: Sameiginleg vagnageymsla.
Bílskúr
Sérmerkt bílastæði á baklóð merkt B01 fylgir eigninni.
Garður
Sérafnotareitur fyrir framan íbúðina í kjallara.
Svalir/þak
Íbúð á 1. hæð með 5,6 fm svölum.
Önnur herbergi
Studió íbúð í bakhúsi skráð sem vinnustofa.