ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Fallegt og vel skipulagt parhús á frábærum stað í grónu hverfi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með litaðri steniklæðningu, bárujárn er á þaki.
Heildarstærð eignarinnar er 142,9 m2 og er sambyggður bílskúr 38,8m2 þar af.
Að innan skiptist eignin í forstofu, hol, 3 svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, stofu og eldhús auk bílskúrs.
Nánari lýsing:
Flísar eru á gólfi í
forstofu og þar er góður fataskápur.
Parket er á
holi og stofu, í stofu er hurð út á baklóð.
Herbergin þrjú eru öll parketlögð og eru fataskápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi er flísalagt, þar er fín innrétting og góður sturtuklefi.
Í
eldhúsi er smekkleg innrétting, flísar eru á gólfi.
Flísar eru á
þvottahúsi og þar er góð innrétting innrétting og skolvaskur.
Bílskúr er með máluðu gólfi, geymsluloft er yfir hluta skúrsins og í enda hans er útgengt í baklóð.
Bílaplan er malbikað og hellulagt.Snyrtileg og vel staðsett eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.