LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Folaldahólar 15, Selfossi. Einkasölu Um er að ræða snyrtilegt og vel skipulagt raðhús, 97,4 fm. að stærð, ásamt 39,5 fm. sambyggðum bílskúr, samtals 136,9 fm. Eignin er fullbúin, byggð úr steypu árið 2004, steinuð að utan og með bárujárn á þaki. Að innan er húsið tvö/þrjú svefnherbergi, stofa, hol, eldhús, baðherbergi, forstofa og þvottahús. Á baklóð er stór timburverönd með skjólveggjum og heitum potti. Lóðin er þökulögð, innkeyrsla er hellulögð með hitalögnum og garðurinn er vel gróinn, skjólsæll og fallegur.
Eignin er staðsett í barnvænu og rólegu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla.
Nánari lýsingForstofa: Flísalögð forstofa með fataskáp.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting og harðparket á gólfi.
Stofa: Harðparket á gólfi og útgengt á verönd með heitum potti.
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Upphengt salerni, innrétting með vaski og walk-in sturta.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús með innréttingu, vaski og tækjum í vinnuhæð.
Bílskúr: Flísalagður bílskúr með álflekahurð og bílskúrshurðaropnara. Geymsluloft yfir bílskúr.
Herbergi inn af bílskúr: Parketlagt rými með útgengi á baklóð.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is