**Hringdu og bókaðu skoðun - Laust strax**FASTMOS S: 586-8080 kynnir: Mikið endurnýjuð og björt 56,2 m2 ósamþykkta íbúð í kjallara við Flúðasel 93 í Breiðholti. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Eignin skiptist í hol, tvö herbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Sérgeymsla í sameign. Fa... Sýna meira
**Hringdu og bókaðu skoðun - Laust strax**FASTMOS S: 586-8080 kynnir: Mikið endurnýjuð og björt 56,2 m2 ósamþykkta íbúð í kjallara við Flúðasel 93 í Breiðholti. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Eignin skiptist í hol, tvö herbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Sérgeymsla í sameign. Fallegar innréttingar og gólfefni. Stórir gluggar eru á eigninni sem gerir hana bjarta og skemmtilega.Eignin er skráð 56,2 m2, þar af íbúðarhlutinn 51,7 m2 og geymsla 4,5 m2.Nánari lýsingHol með harðparketi á gólfi.Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, vegghengdu salerni, sturtu og handklæðaofni.Herbergin eru tvö með harðparketi á gólfi og eru fataskápar í öðru þeirra.Eldhús og stofa eru í sameiginlegu rými með hvítri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél ofni, helluborði og háf. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.Geymsla er í sameign með máluðu gólfi og hillum. Opnanlegur gluggi.Sameiginlegt þvottahús og hjólageymslaSmelltu hér til að fá söluyfirlit sentEndurbætur sem hafa verið gerðar á síðustu árum samkvæmt upplýsingum frá seljendum. Rafmagn hefur verið endurnýjað og settir nýjir tenglar. Skipt um allar innihurðir. Ný gólfefni. Baðherbergi endurgert þ.m.t. neysluvatnslagnir, niðurföll, sett loftræsting ogfl. Sett ný eldhúsinnrétting. Nýtt gler í alla glugga. Íbúðin er nýmáluð að innan. Ný ljós. Nýr dyrasími.Húsið hefur fengið gott viðhald að utan á síðustu árum.Verð kr. 29.990.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.Einnig er hægt að ná í Svanþór í síma 698-8555, og Sigurð í síma 899-1987, .Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ. Opið frá kl. 9-17 alla virka dagaHeimasíða Fasteignasölu MosfelsbæjarFasteignasala Mosfellsbæjar á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.