Eignamiðlun kynnir:
Einstaklega falleg og vönduð um 150 fm fjögurra herbergja hæð með sérinngangi í glæsilegu og vel við höldnu steinhúsi við Flókagötu. Þar af er 26 fm bílskúr sem breytt hefur verið í stúdíóíbúð. Sérsmíðaðir, franskir gluggar og aukin lofthæð setja sterkan svip á hæðina ásamt fallegum gólf- og loftlistum og marmaragluggakistum. Húsið er þekkt kennileiti og þykir eitt af fallegri húsunum við Flókagötu. Húsið stendur á stórri 850 fm lóð á horni Flókagötu og Stakkahlíðar í næsta nágrenni við Klambratún og Kjarvalsstaði. Lóðin er gróin og falleg með tyrfðum flötum og fjölbreyttum gróðri. Fyrir framan bílskúr er hellulagt bílastæði með snjóbræðslu. Fallegur steinsteyptur veggur umlykur lóðina og skapar fallega umgjörð.
**Sækja söluyfirlit**Skipulag eignar: Eignin skiptist í forstofu, rúmgott hol, tvær samliggjandi stofur, tvö svefnherbergi (með möguleika á að bæta við 1–2 herbergjum), eldhús, baðherbergi, aukaíbúð í bílskúr og þvottahús auk geymslu í kjallara. Sérinngangur er frá Flókagötu og er íbúðin á fyrstu hæð í húsinu.
Nánari lýsingForstofa: Flísalögð með fatahengi.
Hol: Rúmgott og bjart með parketi og innbyggðum skáp.
Borðstofa: Rúmgóð með parketi, gluggum til suðurs og vesturs í fallegum, frönskum stíl. Rennihurðir tengja stofurnar saman.
Stofa: Stór og björt með parketi. Fallegur suðurgluggi og útgengi á svalir. Hægt væri að aðskilja rýmin og nýta sem svefnherbergi.
Svalir: Snúa til suðurs mót sólu.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi og góðum innbyggðum skápum, gluggi til austurs.
Barnaherbergi: Parket á gólfi, gluggi til austurs. Aðgengi bæði frá holi og stofu.
Eldhús: Rúmgott með flísum á gólfi. Eldhúsið var áður stækkað á kostnað herbergis og því mögulegt að breyta aftur. Svartlökkuð viðarinnrétting með góðu skápaplássi. Borðkrókur og gluggar í þrjár áttir.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2018. Flísalagt í hólf og gólf með sturtu, glerþili, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Aukaíbúð (bílskúr): 26,0 fm rými með harðparketi, gluggum til suðurs og lítilli eldhúsaðstöðu og baðherbergi. Hentar vel til útleigu og býður upp á góða tekjumöguleika.
Bílastæði: Sérstæði með snjóbræðslu fyrir framan bílskúr. Rúmar vel tvo bíla.
Sameign er snyrtileg með teppi á stigagangi. Innangengt er í kjallara úr íbúð.
Sérgeymsla í kjallara er 5,5 fm með glugga.
Sameiginlegt þvottahús og hitarými eru í kjallara með góðum glugga og útgengi á lóð.
Frábær staðsetning miðsvæðis í rólegu og grónu hverfi. Stutt er í alla helstu þjónustu og skóla auk þess sem Klambratún og Kjarvalsstaðir eru í göngufæri. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
Yfirlit yfir framkvæmdir og viðhald á Flókagötu 69 skv. seljanda1991: Skólp og dren.
2007: Raflagnir í stigagangi endurnýjaðar, útiljós sett upp og tengt í töflu.
2008: Þak endurnýjað; ný þakklæðning og fúaviðgerðir á gluggum í risi. Gluggum á austur- og suðurgafli skipt út.
2011: Húsið málað.
2012: Þakrennur og niðurföll tekin í gegn.
2013: Húsið málað að hluta og litir frískaðir upp.
2014: Hellulagt frá bílskúr að inngangi á 1. hæð.
2016: Dren og skólp frá bílskúr grafið upp og aðskilið.
2020-2021:Sprunga á austurhlið milli 1. og 2. hæðar inndælt.
Ný svalahurð sett í íbúðina.
Skipt um allar innihurðir í íbúðinni og ný eldvarnarhurð sett frá íbúð niður í þvottahús/geymslu.
Skipt um alla rafmagnstengla í íbúð.
Pússað upp parket og settir nýir listar (þ.á.m. sérsm. bogalistar).
Nýjar flísar lagðar í anddyri.
Innbyggðir fataskápar settir upp í hjónaherbergi (AXIS og IKEA).
Loft og loftlistar í íbúð máluð.
Frumherji gerir ástandsskoðun og heildarskýrslu um húsið.
2022–2023:Allt húsið múrviðgert og málað.
Öllum gluggum í sameign skipt út.
Nýir franskir gluggar settir í stofu og borðstofu (samtals fjórir gluggar, íslensk sérsmíði – SJ Tréverk).
Nýir gluggar með einangrandi gleri settir í bæði svefnherbergi á austurhlið (tveir gluggar).
Svalir, þak á bílskúr og tröppur við inngang íbúðar lagfærð.
2024: Vínylparket lagt í leiguíbúð í bílskúr.
2026: Skipt um útihurð í þvottahúsi í kjallara.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook