Eignamiðlun kynnir:
Virkilega falleg og vel skipulögð 151,9 fm neðri sérhæð í fjórbýlishúsi með sérinngangi við Flókagötu 66. Eignin samanstendur af þrem svefnherbergjum, stórum stofum, eldhúsi og baðherbergi. Húsið hefur fengið virkilega gott viðhald og er nýlega sprunguviðgert og steinað. Þá er búið að skipta út öllum gluggum í húsinu. Eigninni fylgir 28 fm bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isLýsing eignar:
Komið inn í flísalagða rúmgóða forstofu. Úr forstofu gengið inn stórt hol sem tengir öll rými íbúðarinnar. Eldhús með borðkrók og tveimur góðum gluggum til norðurs og austurs, flísar á gólfi. Hvít innrétting sem nær upp í loft að hluta og borðplata úr límtré.
Tvær samliggjandi stofur með parketi á gólfum og suðursvölum. Gluggar til suðurs og vesturs.
Hjónaherbergi með eldri fataskáp og tveim gluggum.
Tvö rúmgóð herbergi með parket á gólfi og svalir til vesturs úr öðru þeirra.
Baðherbergi flísalagt með baðkari og glugga.
Innangengt er úr forstofu niður í kjallara þar sem er m.a. geymsla íbúðar og sameiginlegt þvottahús en hver með sína vél á sínum rafmagnstengli.
Bílskúr 28,0fm. með rafmagni, vaski og niðurfalli í gólfi. Búið að tengja ofn í bílskúr og skipt var um tjörupappa á þaki bílskúrs árið 2016.
Framkvæmdir síðustu ár:Húsið múrviðgert og steinað 2022
Endurnýjaðir allir gluggar í húsinu 2022
Allar tröppur utanhús endunýjaðar 2022
Ný rafmagnstafla í sameign 2021
Þak bílskúrs endurnýjað 2016
Þak eignarinnar endurnýjað 2012
Skolp og drenlögn endurnýjuð 2005
Endurnýjað rafmagn í íbúð með nýrri töflu 2005
Innkeyrsla að bílskúr hellulögð 2004
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook