Íbúð
Virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja enda íbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýli. Með parketi frá Birgisson, engir þröskuldar í íbúðinni (nema baðherberginu), nýlegir hurðarkarmar og hurðir með fallþröskuldi. 2025 voru allir gluggar innan íbúðar slípaðir og málaðir.
Stofa
Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með parket á gólfi og útgengi út á stórar vestur svalir með fallegu sjávarútsýni.
Eldhús
Ljóst eldhús með borðkrók með stórum gluggum og útgengi út á grill svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi
Tvö rúmgóð barnaherbergi með parket á gólfi og gluggum sem snúa í austur. Rúmgott hjónaherbergi með parket á gólfi, innbyggðum fataskáp og glugga sem snýr í austur.
Baðherbergi
Flísalagt baðherbergi með sturtubaðkari og fallegri innréttingu.
Þvottahús
Þvottahús sem liggur milli tveggja innganga og deila því 4 íbúðir þvottaherbergi.
Geymsla
Sér geymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Bílskúr
Einkastæði í opnu bílskýli á bílastæði er fyrir neðan hús. Sameiginleg bílastæði eru fyrir neðan hús og á norðurhlið hússins.
Garður
Stór, sameiginlegur garður með leiktækjum og er sameiginlegur Flétturima 31-33-35.
Svalir/þak
Tvennar svalir: Grill svalir í suður og stórar vestur svalir með fallegu sjávarútsýni.
Félagssvæði
Sameiginlegur garður með leiktækjum. Sameiginleg bílastæði. Sameiginleg þvottahús. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Önnur herbergi
Forstofa/hol innan íbúðar með flísum og parketi á gólfi og vönduðum fataskápum.
Svæði
Í göngufjarlægð eru leikskólar, grunnskóli, menntaskóli, sundlaug og öll helsta þjónusta, s.s. í Bónus, Hagkaup, apótek, heilsugæsla, Egilshöll, Dalhús, Spöngin og Borgarholtsskóli sem og golfvöllurinn Korpúlfsstöðum og fallegar gönguleiðir í voginn fagra.