Íbúð
Virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja enda íbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýli. Göngufært yfir í leikskóla, grunnskóla, menntaskóla, sundlaug, verslanir, apótek, heilsugæslu og fallegar gönguleiðir.
Stofa
Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með parket á gólfi. Útgengi út á stórar vestur svalir með fallegu sjávarútsýni.
Eldhús
Ljóst eldhús með ljósri innréttingu og borðkrók með stórum gluggum. Útgengi út á grill svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi
Tvö rúmgóð barnaherbergi með parket á gólfi og gluggum í austur. Rúmgott hjónaherbergi með parket á gólfi, innbyggðum fataskáp og glugga í austur.
Baðherbergi
Flísalagt baðherbergi með sturtubaðkari og fallegri innréttingu.
Þvottahús
Þvottahús sem liggur milli tveggja innganga og deila því 4 íbúðir.
Geymsla
Sér geymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Bílskúr
Einkastæði í opnu bílskýli á bílastæði fyrir neðan hús. Sameiginleg bílastæði fyrir neðan hús og á norðurhlið hússins.
Garður
Stór, sameiginlegur garður með leiktækjum og er sameiginlegur Flétturima 31-33-35.
Svalir/þak
Tvennar svalir: Grill svalir í suður úr eldhúsi og stórar vestur svalir úr stofu með fallegu sjávarútsýni.
Félagssvæði
Sameiginlegur stór garður með leiktækjum, sameiginlegt þvottahús, sameiginleg bílastæði, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Önnur herbergi
Forstofa / hol innan íbúðar með flísum og parketi á gólfi og vönduðum fataskápum.
Svæði
Í göngufjarlægð eru leikskólar, grunnskóli, menntaskóli, sundlaug og öll helsta þjónusta (Bónus, Hagkaup, apótek, heilsugæsla, Egilshöll, Dalhús, Spöngin og Borgarholtsskóli) sem og golfvöllurinn Korpúlfsstöðum og fallegar gönguleiðir í voginn fagra.