LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Þórarinn Thorarensen Löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Einstaklega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 90,6 fm. íbúð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Eldhús innrétting nýlega endurnýjuð, innbyggður ísskápur / frys... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Þórarinn Thorarensen Löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Einstaklega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 90,6 fm. íbúð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Eldhús innrétting nýlega endurnýjuð, innbyggður ísskápur / frystir og uppþvottavél. 2 rúmgóð svefnherbergi og þvottahús innan íbúðar. Góðar suðursvalir. Sameign snyrtileg. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug, matvöruverslun o.fl. Hleðsla fyrir rafmagnsbíl við stæði í bílageymslu, íbúðar leigja hleðslustöð frá N1.Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús / geymslu. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands: íbúð á hæð 90,6 m2. stæði í bílageymslu 12,5 m2. Samtals 103,1 m2. Auk þess er hjólageymsla í sameign og dekkjageymsla í bílakjallara. Nánari upplýsingar:Þórarinn Thorarensen lögg. fasteignasali s. 770-0309 eða Nánari lýsing:Forstofa: Harðparket á gólfi, fataskápur.Miðrými: Harðparket á gólfi.Stofa / Borðstofa: Rúmgóð og björt með harðparket á gólfi, útgengt á góðar suðursvalir.Eldhús: Nýlega endurnýjað, falleg hvít innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Spanhelluborð. Stór búrskápur.Svefnherbergi: 2 herbergi, bæði með dúk á gólfi, fataskápar í báðum. Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Baðkar með sturtuaðstöðu. Falleg innrétting í kringum handlaug.Þvottahús / geymsla: Dúkur á gólfi, góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Gott hillupláss. Opnanlegur gluggi.Stæði í lokaðri bílageymslu, tengi fyrir hleðslustöð klárt við bílastæði.Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð. Sameiginleg dekkjageymsla innaf bílageymslu. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA