Vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í þríbýli í Fellabæ. Stofa og eldhús eru í nokkuð opnu rými með parket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt og þar er baðkar með sturtu í. Þvottahús/geymsla er inn af baðherbergi. Svefnherbergi er nokkuð rúmgott með parket á gólfi og þreföldum fataskápum. Fín íbúð sem vissulega mætti hressa aðeins upp á - góð byrjendaíbúð. Til stendur að endurnýja þak og fyrir liggur tilboð í verkið. Hússjóður stendur ágætlega en viðbótarkostnaður sem fellur á þessa eign er áætlaður um 1,1 milljón.