LIND fasteignasala og Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 5 herbergja íbúð á 1. hæð í sex íbúða fjölbýli við Fiskakvísl 13. Húsið er virkilega fallegt og stendur innst í botnlanga. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og er í hans stíl. Tvennar svalir eru á íbúðinni, aðrar vísa í suður með útgengi úr borðstofu og eru mjög rúmgóðar, hinar vísa í vestur og norður með útsýni til Esjunar frá hjónaherbergi. Íbúðin skipist í forstofu, tvær stofur, þrjú svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Endabílskúr með bílastæði fyrir framan og mjög rúmgóðu geymslurými i risi.Birt stærð eignar er 142.2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr sem er 21,9 fm.
Stutt í alla þjónustu, stofnbrautir, Árbæjarsafn og Ellíðaárdalinn. Mjög fjölskylduvænt hverfi.Allar nánari upplýsingar fúslega veittar í síma 822-8574 eða arinbjorn@fastlind.isNánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísar á gólfi.
Eldhús er með flísum á gólfi og snyrtilegri innréttingu með fínu skápaplássi.
Stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með nýlegu parketi á gólfi og útgengt á stórar suður svalir.
Hjónaherbergi er með rúmgóðum fataskápum, parket á gólfi og útgengi á norður svalir með útsýni til Esjunnar.
Barnaherbergi I er rúmgott með parket á gólfi, glugga á tvenna vegu og útsýni til Esjunnar
Barnaherbergi II er með parket á gólfi og glugga í norður átt með útsýni til Esjunnar.
Baðherbergi upphengt salerni, hita í gólfi og aðstöðu sem hefur verið útbúin í skáp fyrir þvottavél og þurrkara, skolvask og hillur
Geymsla stór og mikil geymsla er á háalofti sem er ekki í heildar fermetra tölu íbúðar.
Bílastæði er fyrir framan bílskúr sem er innbyggður og er við enda hússins.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.