228,4 fm einbýlishús á einni hæð í enda á botnlangagötu við Fífuvelli 24 í Hafnarfirði. Frábær staðsetning. Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 195,5 fm og bílskúrinn 32,9 fm, samtals 228,4 fm skv. Þjóðskrá Íslands. Bílskúrnum hefur verið breytt í tvö herbergi og er því ekki nýttur sem bílskúr í dag.
Nánari lýsing: Forstofa með skápum. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðarhluta hússins í dag og einnig sjónvarpsherbergi sem hægt væri að nýta sem fimmta svefnherbergið. Stofa, borðstofa og eldhús í glæsilegu alrými með aukinni lofthæð, útg. á verönd. Eldhúsið er með nýlegri innréttingu, innbyggð uppþvottavél, ísskápur og frystir, tveir ofnar í vinnuhæð, helluborð. Baðherbergi með hornbaðkari og sturtu, hvít innrétting. Þvottahús er með viðarinnréttingu, stæði fyrir vélar í vinnuhæð. Salerni með sturtu. Innangengt er í bílskúr en honum hefur verið breytt í lítið hol, tvö herbergi og geymslu. Sérinngangur er í geymsluna og sér baðherbergi með sturtu er við skúrinn og því auðvelt að breyta skúrnum í aukaíbúð ef vill. Lóðin er glæsilega hönnuð og frágengin með sólpöllum, hellulögðu svæði, blómabeðum, geymsluskúrum og heitum potti.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.