Lind fasteignasala og Kristján Þórir Hauksson löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega 6 herbergja íbúð á tveimur hæðum að Fífulind 1 í Kópavogi. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 145,3 fm, þar af er íbúðin 140,8 fm og geymsla 4,5 fm. Svalirnar eru sólríkar og snúa til suðurs.
Árið 2020 var parket íbúðar endurnýjað, ásamt innihurðum. Þá var baðherbergið endurnýjað með glæsilegum hætti sama ár. Fimm svefnherbergi eru í íbúðinni, tvö á neðri hæðinni og þrjú á efri hæðinni. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði út á lóð. Neðri hæð:Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með flísar milli efri og neðri skápa. Borðkrókur og gluggi í rýminu. Gólfhiti.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Innaf eldhúsi.
Barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Fallegt og nýlega endurnýjað baðherbergi með gólfhita. Flísar á gólfi og veggjum. Rúmgóður sturtuklefi með innbyggðum tækjum. Baðinnrétting og speglaskápur. Upphengt salerni.
Stofa/borðstofa: Stofurnar í samliggjandi rými. Útgengt út á svalir frá rýminu. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Efri hæð:Hol: Parket á gólfi.
Þrjú svefnherbergi: Parket á gólfi allra og fataskápur í einu.
Skrifstofa/geymsla: Afstúkuð skrifstofa/geymsla án glugga.
Íbúðin er staðsett í fjölskylduvænu hverfi, þar sem leikvellir eru í næsta nágrenni, leikskólar og grunnskóli. Jafnframt er stutt í verslanir og aðra þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Kristján Þórir Hauksson lögg. fasteignasali í síma 696-1122 eða á netfanginu kristjan@fastlind.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.