EIGNIN SELDIST Á FYRSTA OPNA HÚSI, MIKILL ÁHUGI VAR Á EIGNINNI OG KAUPENDUR Á SKRÁ FYRIR SVIPAÐA EIGN. EF ÞIÐ ERUÐ Í SÖLUHUGLEIÐINGUM HAFIÐ SAMBAND Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:Virkilega glæsilega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð.... Sýna meira
EIGNIN SELDIST Á FYRSTA OPNA HÚSI, MIKILL ÁHUGI VAR Á EIGNINNI OG KAUPENDUR Á SKRÁ FYRIR SVIPAÐA EIGN. EF ÞIÐ ERUÐ Í SÖLUHUGLEIÐINGUM HAFIÐ SAMBAND Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:Virkilega glæsilega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð.Frábær fyrstu kaup en íbúðin var endurnýjuð að miklu leiti 2022.Öll helstu heimilistæki s.s. helluborð, bakaraofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!Eignin samanstendur af forstofu, baðherbergi, eldhúsi, þvottahúsi, tveimur svefnherbergjum og útgengt á suðursvalir ásamt því að sérgeymsla fylgir með í kjallara.Birt stærð séreignar er 67,9 fm alls, þar af er geymsla í kjallara 4,6 fm.Um endurbætur:Skipt var um allar innréttingar, allar innihurðir nýjar og hvítar, fataskápar sérsmíðaðir með háglans hurðum. Sett ný eldhúsinnrétting háglans frá Ikea ásamt öllum heimlistækjum nýjum, nýjum vaski og blöndunartækjum.Baðherbergið allt endurnýjað með flísum úr Álfaborg, nýtt upphengt salerni, nýir skápar/hirslur ásamt vaski, sturtugleir og nýjum blöndunartækjum.Gólfefni utan votrýmis er harðparket frá Álfaborg.Bætt var við svefnherbergi og íbúðin gerð þriggja herbergja.Allir gluggar og gler ásamt svalahurð sett nýtt.Ný rafmagnstafla og bætt við töluvert af tenglum og slökkvurum.Virkilega glæsileg íbúð í alla staði.Nánari lýsing:Forstofa - komið er inn á gott forstofuhol, harðparket á gólfi og sérsmíðaður fataskápur með háglans hurðum, fallegur skenkur á vegg.Baðherbergi - endurnýjað 2022, flísalagt í hólf og gólf, sturta, upphengt salerni, vaskur með hirslu og speglaskápur.Hjónaherbergi - rúmgott með sérsmíðuðum fataskáp og harðparketi á gólfi.Svefnherbergi - með sérsmíðuðum fataskáp og harðparketi á gólfi.Eldhús - efri og neðri skápar í L innréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottvél, helluborð, eldavél og vaskur, allt sett nýtt 2022. Stofa/borðstofa - er opið við eldhúsið, gengið út á suðursvalir, harðparket á gólfi.Geymsla - fylgir eigninni í kjallara og er um 4,4 fm.Þvottahús og hjólageymslur - eru sameiginlegt í kjallara með öðrum íbúðum.Nánari upplýsingar veitir:Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali.Sími: 899 0720Netfang: