Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/bjarni@remax.is) kynnir efri hæð og ris auk bílskúrs á Fellsbraut 4, Skagaströnd. Íbúðin er skráð 179,7fm og bílskúrinn 43,1fm, samtals 222,8fm. Sex svefnherbergi, þrjú á hæðinni og þrjú í risi. Hæðin er skráð 126,5fm og risið 49,6fmNánari lýsing:Forstofan er með flísum á gólfi.
Eldhúsið er með eldri innréttingu, gott vinnupláss, eyja á milli, flísar á gólfi.
Borðstofan er björt með parket á gólfi.
Baðherbergið er með hornbaðkari, upphengt wc, flísar á gólfi, gluggi
Herbergin á hæðinni eru
þrjú, öll parketlögð.
Risið er skráð 49,6fm og skiptist í opið miðrými sem nýtt er sem sjónvarpshol og þrjú herbergi, parket á öllum gólfum.
Þvottahús og útigeymsla í sameign.
Húsið er vel staðsett með virkilega góðu útsýni til allra átta.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.