Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Faxastíg 43 sem er neðri hæð og kjallari í tvíbýli í Vestmannaeyjum. Húsið er byggt úr steini árið 1949 og er eignin skráð 148,4 m2. Sér íbúð í kjallara sem gefur leigutekjur, möguleiki á að opna niður og sameina íbúðirnar. Árið 2020 var húsið yfirfarið að utan, múr lagaður og málað. Kjallari endurnýjaður árið 2021, þá sett dren og drendúkur samkvæmt seljanda. Bílskúrsréttur, ljósleiðari komin í hús. Eign með mikla möguleika á frábærum stað miðsvæðis í eyjum.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105Nánari lýsing: Neðri hæð:Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi
Eldhús: Parket á gólfi, hvít eldri innrétting
Stofa: Parket á gólfi
Herbergi 1: parket á gólfi
Herbergi 2: parket á gólfi
Herbergi 3: parket á gólfi
Baðherbergi: Flísar á gólfi og votrýmum, sturtuklefi, vaskur, wc, baðinnrétting, opnanlegur gluggi, tengi fyrir þvottavél
Íbúð í kjallara: Forstofa: Flísar á gólfi
Eldhús: Flísar á gólfi, dökk nýleg innrétting
Stofa: Flísar á gólfi
Baðherbergi: Flísar á gólfi, fibo plötur á vegg, wc, nettur vaskur, sturta, opnanlegur gluggi
Herbergi: Flísar á gólfi
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.