Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.
*
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Faxabraut 25, 230 Reykjanesbær, birt stærð 114.7 fm. Einkar fallega og bjarta 4 herbergja íbúð við Faxabraut 25, Reykjanesbæ.
Íbúðin samanstendur af 2-3 svefnherbergjum, forstofu, stofu, borðstofu, eldhúsi og baðherbergi. Sér geymsla er í sameign í risi merkt 0505.** Eignin er staðsett í rótgrónu hverfi þar sem göngufært er í alla hlestu þjónustu meðal annars í grunnskóla, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, verslunarkjarna og íþróttasvæði
** Nýlegt eldhús
** Nýlegt bað
** Nýlegt parket
** Verönd á baklóð.
** Sér geymsla fylgir eigninni.Nánari lýsing: Anddyri: Parketlagt með fataskáp.
Hjónaherbergi: Virkilega rúmgott með stórum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi, fallegt innrétting, sturta. Aðgengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Falleg innrétting með miklu skápaplássi, parket á gólfi, góður borðkrókur.
Barnaherbergi 1: Mjög stórt, með parketi á gólfi.
Barnaherbergi 2: Parket á gólfi, notað sem geymsla núna og þar er útgengi út á verönd.
Stofa/borðstofa: Stórt opið rými með parketi á gólfi.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.
Sérgeymsla á sameiginlegum geymslugangi efstu hæðar.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.