** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt fullbúið 150,1 m2 endaraðhús reist úr forsteyptum einingum á einni hæð með bílskúr við Fannborgartanga 23 á Flúðum. Birt stærð eignarinnar er 150,1 m2, þar af er íbúðarhluti 117,0 m2 og innbyggður bílskúr 33,1 m2. Eignin skilast fullbúinn samkvæmt byggingarstigi 7 ÍST 51:2001 (gamli staðalinn) byggingarstigi 4 skv nýja. Innréttingar frá HTH, heimilistæki frá AEG, Grohe hreinlætistæki, innihurðir frá Birgisson og gólfefni frá Húsasmiðjunni, Birgisson eða sambærilegt. Dúkloft í svefnherbergjum, gangi og stofu. Á lóðinni er gert ráð fyrir tveimur bílastæðum við hverja íbúð og sorpskýli fyrir 4 sorpílát. Lóð er skilað í hæð og með torfi, hellulagt er undir skyggni að framanverðu og mulningur í bílaplani. Sjá nánar í skilalýsingu hér fyrir neðan. Eignin er laus til afhendingar í júlí 2026.
Verð kr. 89.900.000,-
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Skilalýsing er eftirfarandi:Utanhúss: Þriggja íbúða raðhús á einni hæð. Byggt úr forsteyptum einingum frá Steypustöðinni.
Útveggir eru klæddir forsteyptri veðurkápu að utanverðu með pússaðri áferð og máluð í hvítum lit.
Þak er hefbundið sperruþak með þakpappa og klætt með aluzink, þakkantur grár (Ral 7016) og þakrennur einnig. Þakrennur, niðurföll og þakkantur frágengin.
Lóð: Á lóðinni er gert ráð fyrir tveimur bílastæðum við hverja íbúð og sorpskýli fyrir 4 sorpílát. Lóð er skilað í hæð og með torfi, hellulagt er undir skyggni að framanverðu og mulningur í bílaplani.
Gluggar: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri og ál/tré inngangshurðar/svalahurðar í gráum lit (Ral 7016).
Innanhúss:Eignin skilast fullbúinn samkvæmt byggingarstigi 7 ÍST 51:2001 (gamli staðalinn) byggingarstigi 4 skv nýja.Innréttingar frá HTH, Heimilistæki eru AEG, Grohe hreinlætistæki, innihurðir frá Birgisson og gólfefni frá Húsasmiðjunni, Birgisson eða sambærilegt. Dúkloft í svefnherbergjum, gangi og stofu. Gipsloft í bílskúr, baði, geymslu og þvottahúsi sparslað, grunnað og málað. Gólf eru steypt og með fljótandi harðparketi og flísum að hluta til.
Innveggir: Uppsettir samkvæmt teikningu, léttir innveggir klæddir með spónaplötum innra lag og gifsplötum ytra lag, sparstlaðir,grunnaðir og málaðir.
Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd. Rafmagn dregið í, tenglar,rofar og innfelld ljós frágenginn.
Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Pípulagnir: Inntak hita og neysluvatns klárt. Gólfhitakerfi tengt og frágengið (ekki gólfhitastýring). Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og steypta innveggi samkvæmt teikningum. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi. Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin. Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar skipulagsteikningar. Heimtaugar rafmagns og boðtauga skulu tengdar og frágengnar.
Annað: Minniháttar breytingar hafa verið gerðar frá gildandi teikningum og á eftrir að skila inn reyndarteikningum fyrir þær breytingar. Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd. Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.