***OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 12.MAÍ KL 17:30-18:00. EIGNIN VERÐUR EKKI SÝND FYRIR OPIÐ HÚS***
Móeiður Svala og Miklaborg kynna í einkasölu: Einstaklega notalega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja jarðhæðaríbúð (ekkert niðurgrafin) í litlu fallegu fjölbýli við Fálkagötu í hjarta vesturbæjar Reykjavíkur.
Hér er um að ræða fallega eign á rólegum og vinsælum stað þar sem stutt er í Háskóla Íslands, miðbæinn, kaffihús, verslanir og útivist. Útgengt í vel gróinn suðurgarð með hellulögðum sérafnotareit.
Íbúðin er skráð 73,9 fm, þar af 3,2 fm sérgeymsla.
Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Skipulag eignarinnar er afar gott með björtu alrými, tveimur svefnherbergjum og virkilega stílhreinu eldhúsi með hnotu innréttingu, hvítri borðplötu og góðu vinnuplássi.
Baðherbergið er snyrtilegt og rúmgott, baðkar með sturtu, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.
Frá stofunni er gengið út í skjólgóðan og vel gróinn suðurgarð með hellulögðum sérafnotareit, sem nýtist einstaklega vel yfir sumarmánuðina.
Tvö svefnherbergi eru í eigninni, þar af rúmgott hjónaherbergi með stórum og góðum fataskápum.
Eigninni fylgir sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og þvottaaðstöðu.
Virkilega falleg eign á eftirsóttum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Húsið stendur á eignarlóð.
Allar upplýsingar um eignina veitir: Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu
























| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 11.05.2026 Nánar | 73,9 m² | 986.468 kr. | 72.900.000 kr. |
0102 ![]() | 2 | 73,90 m² | 72.900.000 kr. 11. maí 2026 | 61.500.000 kr. 17. maí 2022 |
0201 | - | - | - | - - |
| 3 | 84,80 m² | 69.900.000 kr. 18. janúar 2024 | 73.000.000 kr. 24. febrúar 2024 |
0301 | - | - | - | 43.000.000 kr. 2. maí 2017 |
0202 | - | - | - | - - |
| 4 | 105,40 m² | 59.800.000 kr. 25. maí 2021 | 58.200.000 kr. 8. júlí 2021 |