Falleg hæð í tvíbýli á skjólsælum útsýnisstað í suðurhlíðum Kópavogs. Húsið er staðsteypt á 2 hæðum. Birt stærð 172,7 fermetrar.
Efri hæð skiptist í forstofu, opið eldhús, stóra stofu, stórt svefnherbergi, og rúmgóða gestasnyrtingu. Útgengt úr stofu og svefnherbergi á stórar L-laga suðursvalir. Steyptur stigi niður á neðri hæð. Neðri hæð skiptist í 2 rúmgóð svefnherbergi, annað þeirra með útgengi á skjólgóðan sólpall sem snýr í suður. Baðherbergi og þvottaherbergi/geymsla.
Bílskúrinn er 27 fermetrar og er sambyggður húsinu, en ekki innangengt. Á honum er inngönguhurð, stór suður gluggi með útsýni yfir Kópavog og út á sjó, rafmagn, heitt/kalt vatn og niðurfall. Því væri einfallt að breyta honum í studio íbúð. Verið er að heilmála húsið að utan, þ.e. þak, tréverk og stein, og verður þeirri vinnu lokið fyrir afhendingu.
Stór garður sem snýr í suður.
Fasteignin er einbýlishús með aukaíbúð á hluta neðri hæðar, með sér fasteignanúmer, sem fylgir ekki þessari sölu. Sú íbúð er nýlega uppgerð, birt stærð 60,5fm, með góðar leigutekjur, og fæst keypt - þ.a. kaupandi geti notað fasteignina sem einbýli.
Fjármögnun: IMIROX lán til lögaðila í boði á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@imirox.com eða hringið í síma 777-2500.



















Kíktu á dæmið með Aurbjörgu
| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 4 | 172,70 m² | 119.900.000 kr. 29. apríl 2026 | 44.984.000 kr. 5. mars 2015 |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 5. mars 2015 | 44.984.000 kr. |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 29.04.2026 Nánar | 172,7 m² | 694.268 kr. | 119.900.000 kr. |
| 08.04.2026 Nánar | 172,7 m² | 694.268 kr. | 119.900.000 kr. |
| 08.04.2026 Nánar | 233,2 m² | 771.441 kr. | 179.900.000 kr. |



















0101 ![]() | 2 | 60,50 m² | 59.900.000 kr. 29. apríl 2026 | 12.016.000 kr. 5. mars 2015 |