Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:
Fallega íbúð í sérbýli sem hefur verið mikið endurnýjuð og er með sérinngangi og bílastæði.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.is
Íbúðin er með einu svefnherbergi og er staðsett í suðurhlíðum Kópavogs við rólega götu.
Stór sameiginlegur garður og verönd, gengið er frá bílastæði niður með hægri hlið hússins, inn í garðinn og að inngangi íbúðar.
Sér geymsla/þvottahús er innan íbúðar og er birt stærð 60,5 fm.
Nánari lýsing:
Forstofan er flísalögð, svefnherbergið er parketlagt með fataskáp, baðherbergi er flísalagt á gólf og veggi, gólfhiti, handklæðaofn, upphengt wc og þröskuldalausri sturtu. Geymsla/þvottahús er við hlið baðherbergis og er tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísalagt rými. Eldhús/stofa/borðstofa er opið saman. Eldhúsið með flísum, falleg innrétting, góð tæki, Siemens uppþvottavél og innbyggður örbylgjuofn. Stofan er svo parketlögð.
Fjármögnun: IMIROX lán til lögaðila í boði á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is.
Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.