LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN KYNNIR: Um er að ræða snyrtilega og fallega 4ra herbergja 102,4 fm hæð í tvíbýli sem hefur hlotið gott viðhald á undanförnum árum m.a. byggður pallur, tafla endurnýjuð, skipt um gler og glugga eftir þörfum. Hluti af vatnslögnum voru endurnýjaðar í kringum 2008. Bílskúrinn he... Sýna meira
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN KYNNIR: Um er að ræða snyrtilega og fallega 4ra herbergja 102,4 fm hæð í tvíbýli sem hefur hlotið gott viðhald á undanförnum árum m.a. byggður pallur, tafla endurnýjuð, skipt um gler og glugga eftir þörfum. Hluti af vatnslögnum voru endurnýjaðar í kringum 2008. Bílskúrinn hefur fengið mikið viðhald og búið að breyta honum í íbúð, m.a. rafmagn og lagnir endurnýjaðar og hluti glugga. Hægt að yfirtaka leigusamning.Íbúðin er 74,4 fm (merkt 01-0101) og bílskúr er 28,0 fm (merkt 02-0101) samtals 102,4 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.Sýningu á eigninni annast Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali s.694-4112 eða með tölvupósti: Forstofa er með flísar á gólfi og er sameiginlegt með íbúð á efri hæð.Stofa er með plastparketi á gólfi og þaðan er útgengt á hellulagða sólstofu og þaðan út á sólpall sem er lokaður að hluta.Eldhús er með plastparket á gólfi, hvít innrétting og flísar á milli, skipt var um borðplötu ásamt því að skipt var um vask, ofn, helluborð og bakaraofn.Svefnherbergin eru 3 og eru með plastparketi á gólfum og skápum. Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtuklefi, upphengt wc, gluggi, skúffa undir vask, skápur yfir vask og handklæðaofn.Þvottahús er í kjallara hússins.Geymsla er í köldum skúr á verönd og smá rými við tröppur á leið í kjallarann.Bílskúr er með harðparket á gólfi, stofa og eldhús eitt alrými, baðherbergi er með flísar á gólfi, sturtuklefi, wc og innrétting. Hitalögn er í aðkeyrslu að bílskúr, búið að gera klárt en er ekki tengt.Frekari upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 694 4112 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA