Einstakt tækifæri til að eignast jörðina Eystri Þurá 1 sem staðsett er 5 km suðvestur af Hveragerði. Á jörðinni er talsverð trjárækt, gott beitiland og um 7 hektarar af túnum sem hafa verið slegin á hverju ári. Það land sem um ræðir er neðan við þjóðveg 38 og nær niður að Þorleifslæk. Alls eru það um 41 hektarar í séreign, auk þess er helmings eign í 25 hektara spildu.Jörðin er í 40 km akstursfjarlægð frá Rauðavatni og gæti hentað vel hestamönnum, þeim sem hafa hug á að byggja upp ferðaþjónustu eða þeim sem vilja búa rétt fyrir utan borgina í fögru umhverfi.
Ef áhugi er fyrir því að eignast meira land er möguleiki á því. Það land er fyrir ofan við þjóðveg 38 en það eru 7 hektarar í skiptu og um 90 hektarar í óskiptu.
Húsakostur:Fallegt og mikið endurnýjað 208 fm einbýlishús stendur á jörðinni. Upprunalega var það byggt 1925 en er mikið endurnýjað og síðan byggt við það 2002. Húsið stendur hátt og er reisulegt. Á jörðinni er 117 fm hlaða sem var endurbyggð árið 2000 ásamt óinnréttuðu 69 fm hesthúsi (sambyggt). Íbúðarhús er hitað með varmadælu (loft í vatn) en útihús er óupphitað.
Þuráará rennur skammt frá hlaðinu og á jörðinni er talsverð trjárækt sem veitir gott skjól. Jörðin á veiðirétt í Þorleifslæk en hann er leigður af veiðifélagi.
Íbúðarhús:Komið er inn í rúmgott anddyri, náttúrusteinn á gólfi. Innaf er baðherbergi og geymsla. Eldhús er mjög rúmgott með snyrtilegri innréttingu, þar er einnig borðstofa. Stofa og sólstofa taka við, náttúrusteinn á gólfum. Annað baðherbergi og þvottahús eru einnig á neðri hæð.
Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi ásamt litlu baðherbergi.
Háaloft sem nýtist vel sem geymsla eða svefnloft en reiknast ekki inn í fermetratöluna.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason as@hofdi.is, Gsm 8953000.-