Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna: Espigerði 2, 108 Reykjavík. Vel staðsetta 4ja herbergja útsýnisíbúð á fimmtu hæð í góðu lyftuhúsi við Espigerði 2 í Reykjavík. Fallegt útsýni er til suðurs, norðurs og austurs. Frábærlega vel staðsett eign miðsvæðis í vel við höldnu fjölbýlishúsi. Komið... Sýna meira
Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna: Espigerði 2, 108 Reykjavík. Vel staðsetta 4ja herbergja útsýnisíbúð á fimmtu hæð í góðu lyftuhúsi við Espigerði 2 í Reykjavík. Fallegt útsýni er til suðurs, norðurs og austurs. Frábærlega vel staðsett eign miðsvæðis í vel við höldnu fjölbýlishúsi. Komið er inn í snyrtilega sameign sunnan við húsið. Frágangur á lóð og sameign er allur til fyrirmyndar. Rafhleðslustöðvar eru á sameiginlegu bílastæði.Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, stofu og borðstofu, eldhús og góðar svalir sem snúa í suður og austur með glæsilegu útsýni.Smellið hér til þess að sjá myndband af eigninniNÁNARI LÝSING:Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu. Parket á gólfi.Baðherbergi: Var endurnýjað 2018 og er með góðri innréttingu, flísalagt, upphengt salerni, handlaug og sturta. Tenging er fyrir þvottavél á baðherbergi.Eldhús: Var endurnýjað 2015. Parketi á gólfi. Span AEG helluborð.Stofa/borðstofa: Eru samliggjandi með fallegu útsýni og útgengi á svalir sem liggja suður og vestur við stofu og borðstofu.Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur. Svefnherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur. Svefnherbergi III: Er inn af borðstofu með parketi á gólfi. Geymsla: Sér geymsla fylgir íbúð á jarðhæð.Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús með stórum þvottavélum og þurrkara, ásamt leikherbergi, hjóla- og vagnageymslu. Á efstu hæð hafa eigendur íbúða aðgengi að litlum sal með útgengi á stórar svalir sem snúa til suðurs. Sameiginleg bílastæði eru staðsett austan megin við húsið auk þess er hægt að keyra að aðalinngangi hússins með góðu aðgengi. Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár, gert við múrverk og málað og skipt um valda glugga meðal annars. Ástandsskýrsla liggur fyrir sem var unnin árið 2019 og framkvæmt var eftir. Eignin Espigerði 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-4163, birt stærð 88,6 fm. Nánar tiltekið eign merkt 05-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, tölvupóstur Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.