LIND fasteignasala kynnir fallegt og vel skipulagt einbýli á tveimur hæðum með bílskúr við Eskiholt 18 í Garðabæ. Á neðri hæð er forstofa, hol, tvö stór svefnherbergi, gestasalerni, þvottahús, geymsla og tvöfaldur bílskúr.Á efri hæð eru tvö stór svefnherbergi (þrjú til fjögur á teikningu), stór stof... Sýna meira
LIND fasteignasala kynnir fallegt og vel skipulagt einbýli á tveimur hæðum með bílskúr við Eskiholt 18 í Garðabæ. Á neðri hæð er forstofa, hol, tvö stór svefnherbergi, gestasalerni, þvottahús, geymsla og tvöfaldur bílskúr.Á efri hæð eru tvö stór svefnherbergi (þrjú til fjögur á teikningu), stór stofa, borðstofa, eldhús og baðherbergi. Mikið útsýni er af efri hæð. Útgengt er af efri hæð á skjólgóða suðurverönd. Húsið er teiknað af Helga Hjálmarssyni arkitekt. Eignin er skráð 299,9 fm hjá Þjóðskrá Íslands, þar af er tvöfaldur bílskúr 44 fm. Við bætast um 36,4 óskráðir fermetrar á neðri hæð og er eignin því samtals 336,3 fm. Eignin stendur á frábærum útsýnisstað í Hnoðraholti þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu. Golfvöllur GKG er steinsnar frá. Bókið einkaskoðun hjá Láru Þyri í síma 899-3335, NÁNARI LÝSING:Neðri hæð:Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi, annað þeirra með fataskáp.Gestasnyrting með flísum á gólfi.Þvottahús er rúmgott með útgengi út í garð. Innrétting með skolvask og miklu skápaplássi, flísar á gólfi.Bílskúr er rúmgóður með auka geymsluplássi inn af, flísar á gólfi. Heitt og kalt vatn er í bílskúr. Upphitað bílaplan.Efri hæð:Flísalagður stigi liggur upp á efri hæð.Skáli er fyrir framan herbergi með marmaraflísum á gólfi. Gengið er út á stóra, skjólgóða suðurverönd frá skála og þaðan er gengið í fallegan og vel gróinn garð.Eldhús er rúmgott með borðkrók og góðu skápaplássi, parket á gólfi.Stofan er opin og björt með aukinni lofthæð, parket á gólfi. Fallegt útsýni til vesturs yfir Garðabæinn og höfuðborgina. Fallegur arinn er í stofu. Á teikningu er hluti stofu teiknaður sem vinnuherbergi svo möguleiki er á að bæta þar við einu svefnherbergi. Borðstofa er með flísum á gólfi.Herbergin eru tvö, mjög rúmgóð og með parketi á gólfi, annað þeirra með fataskápum. Möguleiki er á að skipta öðru herberginu í tvö herbergi.Baðherbergið er rúmgott, flísar á gólfi, innrétting með handlaug, baðkar, sturtuklefi og salerni, opnanlegur gluggi.Garður er fallegur, vel skipulagður og gróinn. Gengið er út á skjólgóða suðurverönd. Tengi er til staðar fyrir heitan pott.Frágangur lóðarinnar er til fyrirmyndar og falleg aðkoma er að eigninni. Eign í sérflokki með glæsilegu útsýni á frábærum stað í Garðabæ, stutt í alla þjónustu, golfvöllur í göngufæri. Nýlega er búið að opna nýjan veg inn í hverfið frá Arnarnesvegi sem einfaldar alla aðkomu inn í hverfið.Allar nánari upplýsingar veitir:Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6% 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.