Gimli fasteignasala s-570-4800 kynnir í sölu reisulegt og vel viðhaldið einbýlishús á fallegum útsýnisstað við Eskiholt 18 í Garðabæ. Húsið er vel staðsett sem næst innsta hús í lokuðum botnlanga. Húsið er mjög vel skipulagt og gefur möguleika á að bæta við 5 svefnherberginu með því að setja upp mil... Sýna meira
Gimli fasteignasala s-570-4800 kynnir í sölu reisulegt og vel viðhaldið einbýlishús á fallegum útsýnisstað við Eskiholt 18 í Garðabæ. Húsið er vel staðsett sem næst innsta hús í lokuðum botnlanga. Húsið er mjög vel skipulagt og gefur möguleika á að bæta við 5 svefnherberginu með því að setja upp millivegg, en hurðin er til staðar.Útsýnið er mjög fallegt og sést m.a. vestur á Snæfellsjökul og víðar.Aðkoman er mjög falleg, að framan er lóð og bílastæði hellulagt með hitalögn undir. Bakgarðurinn er mjög fallegur með nýlegri stórri viðarverönd mót suðri. Viðurinn er lerki sem ekki þarf að mála og viðhalda.Neðri hæð hússins skiptist í forstofu, hol, tvö rúmgóð herbergi, þvottahús, geymslu og 44 fm bílskúr.Golfvöllur GKS er í næsta nágrenni sem og hið nýja glæsilega fjölnota íþróttahús Garðabæjar.Stutt er í fallegar göngu og hjólaleiðir.Tengi er til staðar á verönd fyrir heitan pott.Nánari upplýsingar veitir Bárður H Tryggvason sölustjóri, í síma 8965221, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til Stærð lóðar er 825 fm.Stærð hússins skv FMR er skráð 299.9 fm en er í raun stærra um 36,4 fm og því um alls 336,3 fm.Fasteignamat hússins er fyrir 2024 er kr. 173.600.000.NÁNARI LÝSING:Neðri hæðinn skiptist sem hér segir.Forstofa flísalögð með skáp.Gestasnyrting sem er nýlega endurnýjuð með flísum á gólfi.Tvö rúmgóð svefnherbergi sem eru parketlögð og er skápur í öðru.Þvottahús sem er rúmgott. Innrétting og gott skápapláss. Útgengi út í garð úr þvottahúsi. Bílskúrinn er flísalagður og með heitu og köldu vatni, geymsla innaf honum.Efri hæðin skiptist sem hér segir.Stiginn uppá efri hæð er flísalagður.Eldhús sem er mjög rúmgott með stórum glugga og glæsilegu útsýni. Vandaðri eikarinnréttingu og búið er að endurnýja tæki í eldhúsi, parket á gólfi.Skáli sem er flísalagður og út frá honum er gengið út á timburverönd í suður.Stofurnar eru rúmgóðar með glæsilegu útsýni. Aukin lofthæð er í stofum. Arinn í stofum. Á teikningu er teiknað vinnuherbergi sem ekki er til staðar. Parket er á stofum.Svefnherbergin á efri hæðinni eru tvö, annað þeirra er mjög rúmgott og lítið mál að skipta því í tvö herbergi en það er þannig á upprunalegri teikningu, hurðin í það herbergi er til staðar í dag.Parket er á herbergjum.Baðherbergið er allt nýlega allt endurnýjað, flísalagt með bakari, sturtuklefa og innréttingu. Gluggi er á baði.Niðurlag:Lóð og frágangur á lóð er mjög góður bæði að framlóð og baklóð.Húsið er og hefur verið í mjög góðu viðhaldi í gegnum árin en núverandi eigandi keypti húsið fokhelt á sínum tíma.Búið er að opna nýjan veg inn í hverfið frá Arnarnesvegi sem einfaldar alla aðkomu inní hverfið, sem ekki var áður.Þetta er mjög fallegt hús á frábærum útsýnisstað með fallegri lerkiverönd í suður á baklóð.Núvernadi skipulagi hússins hefur verið breytt lítillega frá samþykktum teikningum.Nánari upplýsingar veitir Bárður H Tryggvason sölustjóri, í síma 8965221, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.