**Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun**Fjölhús fasteignasala kynnir bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð á fjölskylduvænum stað, við Erluás 2, Hafnarfirði.Um er að ræða vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í fallegu fjölbýli. Sérinngangur íbúðar er af svalagangi.Íbúði... Sýna meira
**Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun**Fjölhús fasteignasala kynnir bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð á fjölskylduvænum stað, við Erluás 2, Hafnarfirði.Um er að ræða vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í fallegu fjölbýli. Sérinngangur íbúðar er af svalagangi.Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi og sér þvottahús.Birt stærð eignarinnar er 91,5 fm og þar af er geymsla eignar 7,3 fm.Nánari upplýsingar veitir: Guðbjörg Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, gsm: 899 5533.Nánari lýsing:Gengið er af opnum svalagangi inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp. Eldhús er vel skipulagt, gott vinnupláss, falleg eikarinnréttng og flísar á gólfum, bjartur og fallegur borðkrókur.Stofa er björt og skemmtileg, stórir gluggar í útsýnisátt, parket á gólfum. Úr stofu er gengið út á góðar suðvestur-svalir.Baðherbergi er með góðri innréttingu, baðkar með sturtu, flísalagt gólf og veggir, upphengt wc.Hjónaherbergi með góðum skápum og parketi á gólfi.Barnaherbergi er inn af forstofu, rúmgott og bjart, parket á gólfum.Þvottahús með flísum á gólfi.Á jarðhæð er sér geymsla íbúðar, ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.Fjölskylduvænt umhverfi, stutt í leik- og grunnskóla, einnig er íþróttasvæði Hauka í Ásvallalaug skammt frá. Frábærar gönguleiðir og útivistasvæði í nágrenninu, meðal annars Ástjörn sem er vinsæl og falleg gönguleið.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa:Stimpilgjald: Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, einstaklingar greiða 0,8 % af fasteignamati, sé um að ræða fyrstu eign greiða kaupendur 0,4% af fasteignamati. Lögaðilar greiða 1,6% af fasteignamati.Þinglýsingarkostnaður: kr. 2.500,- af hverju skjal sem þinglýst er, í samræmi við verðskrá sýslumanns.Þjónustu og umsýslugjald Umsýsluþóknun til fasteignasölu í samræmi við verðskrá.Ofangreind gjöld greiðir kaupandi við undirritun kaupsamningsLántökugjald: Lántökugjald er fast gjald, innheimt af lánastofnun. upplýsingar um lántökugjald má finna á heimasíðum lánastofnanna.