Heimili fasteignasala kynnir til sölu fjögurra herbergja íbúð á sjöttu hæð í lyftuhúsi að Engihjalla 3 í 200 Kópavogi. Eignin er skráð 107.9 m2 að stærð en til viðbótar er sér geymsla í kjallara þ.a. raunstærð eignar er stærri en opinber skráning segir til um. Íbúðin er rúmgóð og björt, með gluggum ... Sýna meira
Heimili fasteignasala kynnir til sölu fjögurra herbergja íbúð á sjöttu hæð í lyftuhúsi að Engihjalla 3 í 200 Kópavogi. Eignin er skráð 107.9 m2 að stærð en til viðbótar er sér geymsla í kjallara þ.a. raunstærð eignar er stærri en opinber skráning segir til um. Íbúðin er rúmgóð og björt, með gluggum á þrjá vegu, og skiptist í anddyri, hol/skála, stofu með útgengi á skjólgóðar svalir, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Á hæðinni er síðan sameiginlegt þvottahús og í kjallara er fyrrgreind geymsla íbúðar. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., Nánari lýsing.Anddyri: með fataskáp og fatahengi, flísar á gólfi.Hol/skáli: tengir saman vistarverur eignar, á gólfi er parket.Stofa: rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu, parketi á gólfi og útgengi á vestur svalir eignar.Eldhús: ágæt eldri innrétting með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu, gluggi með opnanlegu fagi, rúmgóður borðkrókur og flísalagt gólf.Svefnherbergi 1: inn á svefnherbergisgangi, fataskápur innan herbergis og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket.Svefnherbergi 2: inn á svefnherbergisgangi, gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket.Svefnherbergi 3: inn af holi, laus fataskápur innan herbergis, gluggi með opnanlegu fagi og parket á gólfi.Baðherbergi: inn á svefnherbergisgangi, ágæt innrétting, baðkar með sturtuhaus, flísar á gólfi og á veggjum og innan rýmis er gluggi með opnanlegu fagi.Sameign: rúmgott anddyri á jarðhæð þar sem eru flísar á gólfi en annars eru teppi á stigapöllum. Á hverri hæð er sameiginlegt þvottahús, í kjallara er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og í húsinu er nýleg lyfta. Við húseignina er fjöldi bílastæða og á bak við hús er leikvöllur fyrir yngstu kynslóðina. Á undanförnum árum hefur húsið verið múr-, steypuviðgert og málað og gluggar endurnýjaðir eftir þörfum á norður-, suður- og á vesturhlið hússins.Vel skipulögð eign í grónu hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallega náttúru í Kópavogsdal.Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., .Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.