Domusnova fasteignasala og Aðalsteinn Bjarna lgf. kynna í sölu fallega og nokkuð endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftufjölbýli með tvennum svölum við Engihjalla 25 í Kópavogi. Um er að ræða fasteign sem er í heildina 94,40 m2 að stærð ásamt 5,20 m2 geymslu inn af sameign. Íbúðin hefur veri... Sýna meira
Domusnova fasteignasala og Aðalsteinn Bjarna lgf. kynna í sölu fallega og nokkuð endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftufjölbýli með tvennum svölum við Engihjalla 25 í Kópavogi. Um er að ræða fasteign sem er í heildina 94,40 m2 að stærð ásamt 5,20 m2 geymslu inn af sameign. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð á undanförnum árum og hefur meðal annars bæði eldhús og baðherbergi verið endurnýjað. Íbúðin er afar vel skipulögð og nýtast fermetrar því vel. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu og borðstofu ásamt eldhúsi í opnu rými við hol og baðherbergi. Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð og íbúð. Tvennar svalir fylgja íbúðinni, við stofu og hjónaherbergi. Tilvalin eign fyrir stækkandi fjölskyldu og sem fyrstu kaup.*** SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN Á EIGNINNI ***EIGNIN ER VEL STAÐSETT Í GRÓNU HVERFI ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU VERSLUN OG ÞJÓNUSTU ÁSAMT LEIK-, GRUNN OG FRAMHALDSSKÓLA Í NÁGRENNI. STUTT Í ÝMSAR GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR UM FOSSVOG OG ELLIÐAÁRDAL.Nánari lýsing og skipting eignar:Forstofu: Gengið er inn í opna forstofu með tvöföldum fataskáp og parketi á gólfi.Hol: Innaf forstofu er rúmgott hol sem tengir saman vistaverur íbúðarinnar. Parket á gólfi.Eldhús: Stílhrein og fín elhúsinnrétting sem sett var fyrir nokkrum árum ásamt vaski, ofni, helluplötu og veggháf. Ráð gert fyrir uppþvottavél og ískáp í innréttingu. Létt eldhúseyja í stíl við innréttingu. Flísar á gólfi.Stofa: Björt með stórum glugga og útgengi á svalir. Stofa rúmar bæði setustofu og borðstofu. Parket á gólfi.Hjónaherbergi: Með opnum fataskáp með skúffum og hillum. Útgengi á góðar svalir. Parket á gólfi.Barnaherbergi: Með rúmgóðum fataskáp og parketi á gólfi.Baðherbergi: Nýlega endurnýjað baðherbergi. Bað með sturtu, upphengt salerni, vaskur, hvít innrétting með spegli og handklæðaofn á vegg. Fallegar gráar flísar hátt og lágt.Þvottaherbergi: Við hlið íbúðar er sameiginlegt þvottahús með tveimur öðrum íbúðum.Geymsla: Ágæt 5,20 m2 sérgeymsla inn af sameignargangi á jarðhæð.Gólfefni: Flæðandi viðarparket er á öllum rýmum íbúðar nema eldhúsi og baðherbergi, en þar eru flísar.Allar nánari upplýsingar veita:Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773 3532 / Margrét Rós Einarsdóttir - Aðstoðarmaður fasteignasala, í löggildingarnámi. / s. 856-5858 / *** SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ FRÍTT FASTEIGNAVERÐMAT Á ÞÍNA EIGN ***Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.