LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna bjarta, fallega og virkilega vel skipulagða þriggja herbergja 71,8 m2 íbúð í Efstasundi 17, 104 Reykjavík. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn á hæð 71,8 m2 ásamt ca. 4 m2 óskráðri geymslu. Samtals er því eignin um 75,8 m2.Íbúðin, sem er... Sýna meira
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna bjarta, fallega og virkilega vel skipulagða þriggja herbergja 71,8 m2 íbúð í Efstasundi 17, 104 Reykjavík. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn á hæð 71,8 m2 ásamt ca. 4 m2 óskráðri geymslu. Samtals er því eignin um 75,8 m2.Íbúðin, sem er á efri hæð (1. hæð) í afar rólegu og góðu þríbýli, er með tvennum rúmgóðum svölum, forstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi og stofu. Hjónaherbergi er mjög rúmgott og barnaherbergi um 8m2. Útgengt er á austursvalir frá stofu (alrými) og á norðursvalir úr hjónaherbergi. Í sameigin á jarðhæð er geymsla, hjólageymsla og þvottahús þar sem hver er með sínar vélar. Þrír inngangar eru inn í húsið að framanverðu, í hjólageymslu og þvottahús. Aðgengi að íbúðinni er sérstaklega gott og því er um að ræða afar hentuga íbúð fyrir fjölskyldufólk. Yfirbyggt sér bílastæði er beint fyrir utan og gengið upp nokkrar tröppur á stigapall 1. hæðar. Gróið hverfi með stórum, fallegum og afgirtum sameiginlegum garði.Stutt er frá eigninni í alla helstu þjónustu; verslanir, Langholtsskóla, fjóra góða leikskóla og íþróttafélögin Þrótt og Ármann. Verslunarkjarnarnir Glæsibær, Skeifan og Holtagarðar eru í göngufjarlægð frá eigninni. Stutt er einnig í Grasagarðinn, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, Laugardalslaug o.s.frv.* Mjög góð fermetranýting og gott skipulag.* Hús fremur nýlegt fyrir hverfi 104 (byggt 1990)* Yfirbyggt bílastæði* Afar gott aðgengi um rúmgóðan teppalagðan stigagang* Tvennar rúmgóðar svalir* Gróinn og fallegur afgirtur garður* Ljósleiðari* Fasteignamat 2023 verður 50.000.000Nánari lýsing eignarForstofa með flísum á gólfi og innbyggðum rúmgóðum fataskáp.Eldhúsið er opið inn í stofu með parketi á gólfi og innréttingu á tvo vegu með gegnheilli olíuborinni viðarborðplötu, innbyggðum ísskáp og frysti. Lítil innbyggð uppþvottavél er í innréttingu, ofn í vinnuhæð, nýtt keramik helluborð með Gorenje viftu yfir. Í eldhúsi er innbyggð dimmer lýsing.Stofa/borðstofa með parketi á gólfi, stórum gluggum sem vísa út í gróinn og fallegan garð, útgengi út á rúmgóðar svalir til austurs og dimmer lýsing.Hjónaherbergi með parketi á gólfi og nýlegum hvítum IKEA fataskáp með rennihurðum, útgengi út á svalir til norðurs, dimmer ljós.Barnaherbergi með parketi á gólfi og stórum glugga.Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta til, baðkar með sturtuaðstöðu, stór speglaskápur með mjög góðu geymsluplássi, vaskur með spegli fyrir ofan, handklæðaofn og stór gluggi með opnanlegu fagi.Geymslan er um 4 m2 (óskráð í FMR) með góðum hillum.Stórt og afar rúmgott geymsluloft er yfir sameignargangi fyrir allar þrjár íbúðirnar.Hjólageymsla er sameiginleg á jarðhæð.Þvottahús er sameiginlegt á jarðhæð.Garður er stór, gróinn, afgirtur og sameiginlegur.Helstu endurbætur:*2020 var þakkkantur og allir gluggar málaðir.*2015/2016 var skipt um þakrennur.Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða