ÁRBORGIR FASTEIGNASALA 482 4800 kynnir í einkasölu;Dverghólar 16 146,6 fm parhús á vinsælum stað á Selfossi
Húsið er byggt árið 2001 úr timbri og er klætt að utan með steniklæðningu og bárujárn er á þaki.
Heildarstærð eignarinnar er 146,6 fm og er sambyggður bílskúr 28 fm þar af.
Nánari lýsing:Forstofa er flísalögð og þar er stór fataskápur.
Hjónaherbergi er parketlagt og þar er stór fataskápur.
Herbergi 2 er mjög rúmgott með
uppteknu lofti.
Herbergi 3 er með
upptekið loft og
innbyggðri lýsingu.
Þvottahús er flísalagt, þar er skolvaskur og ágætt skápapláss.
Bílskúr er klæddur og málaður, geymsluloft er yfir hluta bílskúrsins.
Baðherbergið er flísalagt bæði gólfi og veggjum. Þar er hornbaðkar, sturta og innrétting með tveim handlaugum.
Eldhús, stofa og borðstofa: eru í björtu rúmgóðu opnu rými og er útgengt út á sólpall úr borðstofu. Loft eru upptekin í rýminu.
Stór sólpallur með skjólveggjum er við húsið, lóðin er gróin og mulningur er í innkeyrslu.
Í heildina er um að ræða snyrtilegt og vel skipulagt parhús á einni hæð í eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.