Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Draumheimar 5, 301 AkranesEinstaklega fallegur og vel staðsettur bústaður í Hafnarskógi, skammt frá Borgarnesi. Eignin er staðsett á lokuðu svæði með hliði og býður upp á notalegt umhverfi þar sem stutt er í verslun, golfvöll og fallegar gönguleiðir. Bústaðurinn skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og bjart alrými með stofu og borðstofu. Í húsinu er varmadæla í lofti og hitakútur fyrir neysluvatn.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 74.4 m².
Eign merkt 01-01, fastanúmer 229-4974 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:Forstofa er með flísum á gólfi.
Svefnherbergin eru
þrjú, öll með parketi á gólfi, og er eitt þeirra með góðu skápaplássi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu og útgengi út á verönd.
Stofa og
eldhús eru í opnu og samfelldu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengi út á verönd. Eldhús er með fallegri dökkri innréttingu og vönduðum tækjum.
Geymsla er við hlið inngangs og er gengið í hana af hellulagðri verönd.
Verönd er rúmgóð og vel útfærð með hellulagðri verönd við húsið. Við eignina eru tveir nýlegir samtengdir pallar, annar um 18 m² með rafmagnspotti og hinn um 25 m² að stærð. Verið er að setja upp saunaklefa og er aðeins lítilsháttar frágangur eftir. Um 40 m² af hellum fylgja með í kaupum á eigninni.
Nýr lóðarleigusamningur er til 25 ára. Lóðarleiga er um kr. 125.000 á ári og árgjald í félag sumarhúsaeigenda á svæðinu er kr. 5.000.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00