Eignamiðlun kynnir:Vel skipulögð fimm herbergja, 156,7 fm endaíbúð á fyrstu hæð í snyrtilegu og vel viðhöldnu fjögurra hæða fjölbýlishúsi við Dalsel 38 á góðum stað í Seljahverfinu. Endurnýjað eldhús og baðherbergi, lokaðar svalir með gólfhita. Stæði í lokaðri bílageymslu. *** Bókið skoðun: Kári Sig... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Vel skipulögð fimm herbergja, 156,7 fm endaíbúð á fyrstu hæð í snyrtilegu og vel viðhöldnu fjögurra hæða fjölbýlishúsi við Dalsel 38 á góðum stað í Seljahverfinu. Endurnýjað eldhús og baðherbergi, lokaðar svalir með gólfhita. Stæði í lokaðri bílageymslu. *** Bókið skoðun: Kári Sighvatsson, sími 899-8815 / *** Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá Íslands: Fastanr. 2055920, nánar tiltekið merkt 08-01-02. Íbúðin er skráð 117,9 fm og skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og yfirbyggðar / lokaðar svalir með gólfhita. Geymsla (7,1 fm) í séreign í kjallara hússins merkt 08-00-04. Stæði í bílskýli merkt 10-01-12 fylgir og er það skráðir 31,7 fm. Nánari lýsing eignar:Í anddyri eru skápar með innfelldri lýsingu og flísar á gólfi. Í eldhúsi er nýleg og snyrtileg hvít háglans innrétting, borðkrókur undir glugga. Flísar eru á gólfi. Eldhúsið er opið í báða enda og hægt að ganga í hring. Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfum og þaðan er útgengt á svalir sem eru flísalagðar, yfirbyggðar / lokaðar og með gólfhita. Svefnherbergin eru fjögur, tvö þeirra með skápum og öll eru þau með parket á gólfi. Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Snyrtileg hvít innrétting með 6 stórum skúffum, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu og skáp er þar fyrir ofan. Upphengt salerni. Baðkar með sturtu. Handklæðaofn. Flísar í hólf og gólf og hiti í gólfi baðherbergis. Gluggi er á baðherberginu. Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu og þurrkherbergi. Húsið að utan er áklætt og viðhaldslétt, þak hefur verið endurnýjað og málað. Sameign er öll hin snyrtilegasta. Viðhald sem ráðist hefur verið í á undanförnum árum: Húsið var álklætt 2003-2004Skipt var um þakklæðningu 2009Skipt var um teppi og stigahús málað 2012Skipt um allar hurðir í sameign og inn í íbúðir 2012Allar skólplagnir voru fóðraðar af Oliner 2014Skipt var um alla glugga nema í stofu árið 2015Þakið var málað síðast 2017Gólf í sorpgeymslu, hjólageymslu, þvottaherbergi og hitakompu epoxy kvarts lagt 2018Hitaþráður var settur í þakrennur til varnar frostskemmdum 2019 Bílageymsla byggð 1990:Öryggiskerfi með myndavélum inni og útiAukin lofthæðÞvottastæðiEndurnýjuð lýsingNánari upplýsingar veitir:Kári Sighvatsson nemi til löggildingar í síma 899-8815, Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 588-9090, Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is | Opið mán-fimmtud frá kl. 9-17 og föstud 9-16. Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögumHeimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook