LIND fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og rúmgóða 3ja - 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi í Innri Njarðvík. Góð staðsetning þar sem örstutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.Íbúðin skiptist í forsto... Sýna meira
LIND fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og rúmgóða 3ja - 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi í Innri Njarðvík. Góð staðsetning þar sem örstutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.Íbúðin skiptist í forstofu, tvö til þrjú svefnherbergi en þriðja herbergið er merkt sem geymsla og nýtist sem lítið barnaherbergi eða vinnuherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, opið og bjart alrými með eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu en þaðan er gengið út á svalir. Gólfhiti er í allri íbúðinni. Sérmerkt bílastæði og sameiginleg hleðslustöð er fyrir íbúa í húsinu.Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu ásamt sér geymslu.Birt stærð eignar er 67,5 fm. en þar af er geymsla 1,9 fm.**ATH. Skipti möguleg á eign á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarfirði eða nálægum slóðum**Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 862 0880 eða Smelltu hér og fáðu söluyfirlitið strax.Nánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi, opið er úr forstofu inn á parketlagðan gang með ljósum fataskápum frá Parka.Eldhús: Parket á gólfi, dökk innrétting frá Parka með dökkgrárri borðplötu og bakaraofni. Ísskápur og uppþvottavél fylgja. Öll tæki eru frá AEG.Stofa/borðstofa: Er björt og opin með parketlögðu gólfi, stórri rennihurð og útgengi út á 7,1 fm. suðaustur svalir.Svefnherbergi I: Er rúmgott með parketlögðu gólfi og hvítum fataskápum frá Parka.Svefnherbergi II: Parket á gólfi og hvítur fataskápur frá Parka.Svefnherbergi III / geymsla / vinnuherbergi: Flísar á gólfi.Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, sturta með hertu gleri og dökk innrétting með þvottaaðstöðu.Geymsla: Er með máluðu gólfi. Stærð 1,9 fm.Bílastæði: Sérmerkt bílastæði.Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma. ** Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.** Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.** Frítt söluverðmat á þinni eign hér eða hjá Herdís Sölvína Jónsdóttir, sími 862 0880 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.