446 fm verslunar-, þjónustu-, skrifstofu eða veitingahús á þremur hæðum. Nýtt, staðsteypt hús til afhendingar fljótlega. Fullbúið að utan, fokhelt að innan. Góð aðkoma, opið alrými, stórt útisvæði, lyfta áætluð.
Eiginleikar
Íbúð
Heil húseign á þremur hæðum. Góð aðkoga á miðhæð. Opir rými með miklum möguleika. Gengið á milli hæða um steinsteyptan stiga. Góð lofthæð. Húsið er fullbúið að utan en fokhelt að innan. Aðlagað þörfum kaupanda/leigjanda.
Stofa
Opið alrými á miðhæð með góðum gluggum í allar áttir.
Garður
Stórt útisvæði austan og sunnan miðhæðar. Gott útisvæði norðan og vestan megin neðri hæðar.
Svalir/þak
Svalir í norð-vestur á efri hæð.
Svæði
Staðsett við Auðbrekku í Kópavogi. Í fjölförnu hverfi. Stutt er í stofnbraut.
Efni
Útveggir staðsteyptir og einangraðir að utanverðu með 100mm steinullarplötum. Utan á slétt plötuklæðning, dökkgrá. Innveggir umhverfis blautkjarna klæddir með rakavörðu gifsi. Aðrir innveggir hefðbundnir gipsplötuveggir. Svalahandrið úr galvanhúðuðu stáli með samlímdu öryggisgleri. Gluggar og hurðir almennt ál/tré. Klæðningar í brunaflokki 1.
Annað
Virðisaukaskattur á eigninni. Gert er ráð fyrir lyftu í húsinu. Lóðin verður skiluð fullbúinni.