Eignamiðlun kynnir:
Til sölu eða leigu: heil húseign sem er 446 fm húnæði á þremur hæðum við Auðbrekku í Kópavogi. Um er að ræða nýtt staðsteypt hús. Húsið afhendist fullbúið að utan en í boði er allt frá fokheldu að innan að fullbúnu allt eftir þörfum kaupanda eða leigutaka. Frábær staðsetning og gott aðgengi. Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is Um er að ræða nánar tiltekið Auðbrekku 13, 200 Kópavogi, F2059430. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 446,0 fm. Eignin getur verið aðlöguð að þörfum kaupanda/leigjanda af seljanda eftir óskum.
NÁNARI LÝSING:
Góð aðkoma að miðhæð frá Auðbrekku. Tveir inngangar í opið alrými með ýmsa möguleika. Góðir gluggar eru í allar áttir. Stórt útisvæði er austan og sunnan miðhæðar. Gengið er á milli hæða um steinsteyptan stiga á efri og neðri hæðina. Gert er ráð fyrir lyftu í húsinu.
Neðri hæð er með gluggum á norður og vesturhlið. Gott útisvæði er norðan og vestan megin neðri hæðar. Efri hæð er með góðum gluggum í allar áttir og er opið úr efri hæð í sal miðhæðar. Góðar svalir eru í norð-vestur. Góð lofthæð er í húsinu. Húsið er í dag fullbúið að utan en fokhelt að innan en lóðinni verður skilað fullbúinni.
Útveggir eru staðsteyptir og einangraðir að utanverðu með 100mm steinullarplötum. Utan á einangrun er slétt plötuklæðning, dökkgrá að lit. frágangur útveggja að innan er með þeim hætti að þeir eru holufylltir og pússaðir undir málningu. Gluggar og hurðir eru almennt ál/tré gluggar, útihurðir eru álhurðir nema brunakokandi hurðir í kjallara sem að hluta til eru stálhurðir. Innveggir umhverfis blautkjarna eru gipsplötuveggir klæddir með rakavörðu gifsi. Aðrir eru hefðbundnir gipsplötuveggir, 12-15 cm á þykkt. Allar klæðningar eru í brunaflokki1. Svalahandrið á svölum eru úr galvanhúðuðu stáli með samlímdu öryggisgleri. Húsið er einangrað og klætt að utan og gluggar eru ál/tré gluggar og er því húsið viðhaldslétt fyrir vikið.
Vsk-húsnæði.
Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook