Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 og Hús fasteignasala kynna í sölu einbýlishúsið Dælengi 17, Selfossi. Vel staðsett 4-5 herbergja, einbýlishús með bílskúr. Stór suðurlóð. Hellulögð innkeyrsla með hitalögnum. Nýlega endurnýjað þak. Um er að ræða 142,2 fm einbýlishús ásamt 45,8 fm sambyggðum bílskúr í grónu hverfi.. Eignin er byggð árið 1975 úr timbri. Nýbúið er að endurnýja þakpappa, þakjárn, vindskeiðar og þakrennur.
Að utan er húsið klætt með stallaðri upprunalegri málmklæðningu. Alls eru þrjú rúmgóð svefnherbergi í húsinu en mjög einfalt er að bæta einu til tveimur svefnherbergjum við þannig að það verði alls 5 svefnherbergi.
Nánari lýsing. Forstofa flísalögð.
Forstofu salerni sem er flísalagt.
Forstofuherbergi með parketi.
Opið sjónvarpshol (auðvelt að breyta í herbergi).
Stofa er björt þar er upptekið loft.
Borðstofa með hurð út á baklóð. Steypt verönd undir þakskeggi.
Eldhús með snyrtilegri hvítri eldri innréttingu.
Viðarparket er á gólfum í sjónvarpsholi, stofu, borðstofu, eldhúsi og svefnherbergisgangi.
Þvottahús/inngangur flísalagður. Snyrtileg innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, búrskápur.
Hjónaherbergi með skáp og hurð út á baklóð. Parketlagt gólf.
Stórt svefnherbergi. (sem voru áður tvö minni herbergi) Parketlagt gólf.
Baðherbergi flíslagt, þar er baðkar og innrétting.
Bílskúr er flísalagður. Bílskúrshurð með opnara. Gönguhurð út á baklóð.
Stutt er í leikvöll, stutt í grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og miðbæinn.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 steindor@husfasteign.is ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.