Byggðarhorn 9A – Glæsilegt einbýlishús rétt utan SelfossTil sölu einbýlishús með stórum bílskúr á tæplega 2,5 hektara eignarlóð rétt utan Selfoss. Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja njóta sveitasældar án þess að fórna nálægð við alla helstu þjónustu.
Húsið er skráð alls 299,9 fm samkvæmt Fasteignaskrá, þar af er íbúðarrýmið 165,4 fm og bílskúrinn rúmgóður, 134,5 fm. Skipulag eignarinnar er afar skemmtilegt og býður upp á mikla möguleika.
Eignin skilast fullbúin að utan með grófjafnaðri lóð. Bílskúrinn er fullfrágenginn að innan en íbúðarhúsið er nánast tilbúið til innréttinga, sem gefur kaupendum einstakt tækifæri til að setja sinn eigin svip á heimilið.
Á lóðinni er heimilt að byggja allt að 750 fm af húsnæði, sem eykur enn á möguleika eignarinnar.
Staðsetningin er einstök, í fallegu sveitaumhverfi þar sem sveitarfélagið Árborg sér um alla helstu þjónustu, þar á meðal snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur sem og afhendingu á heitu og köldu vatni.
Sjá teikningar. Þar má sjá hvernig mögulegt væri að skipuleggja húsið, en skipulagið er að öðru leyti opið og hver og einn getur útfært það eftir þörfum.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is