Jason Kristinn Ólafsson, sími 775-1515 og Betri Stofan kynna: 254,2 fm eign í Fossvoginum, Búland 6 sem er raðhús á tveimur hæðum fyrir neðan götu og ásamt bílskúr. Eignin er töluvert upprunaleg og er með fimm svefnherbergjum. Herbergjaskipting: Hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi með sturtu. Þrjú lítil barnaherbergi. Eitt rúmgott tómstundarherbergi. Að auki er hægt að nýta herbergi á efri hæð sem heitir húsbóndaherbergi á teikningu sem svefnherbergi.
Nánari lýsing:
Komið inn í
forstofu með flísum, og þar til hliðar er
gestasnyrting, flísar á gólfi.
Á aðalhæð er
eldhús með borðkrók og upprunalegri innréttingu.
Geymsla innaf eldhúsi.
Borðstofa við hliðina á eldhúsi, og auðvelt að opna á milli.
Á efri palli (ein trappa) er stóra
stofur með parket á gólfum, góð lofthæð, stórum gluggum til suðurs og útgengi á
suðursvalir sem snúa inn í bakgarð hússins með fallegu útsýni.
Skrifstofa/Húsbóndaherbergi er á efri hæðinni með fallegu útsýni sem mögulegt er að breyta í svefnherbergi er með glugga til suðurs.
Gengið er niður stiga frá aðalhæð niður á neðri hæð hússins.
Þaðan er útgengi í bakgarð hússins sem er rúmgóður.
Hjónasvíta með fataherbergi og
baðherbergi með sturtu. Þrjú lítil barnaherbergi. Eitt rúmgott tómstundaherbergi.
Baðherbergi nr. 2 er staðsett á neðri hæð og er með baðkari og sturtu. Dúkur á gólfi.
Gott vinnurými er í holi.
Sér inngangur er á neðri hæðinni norðanmegin með anddyri.
Geymslur, önnur geymslan er köld geymsla við hlið anddyris.
Þvottaherbergi sem er með máluðu gólfi. og góð geymsla inn af þvottaherbergi.
Bílskúr: Er 22,4 fm, og þar er geymsluloft að hluta. Sjálfvirkur hurðaopnari.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknarverðum stað við Fossvogsdalinn í Reykjavík.
Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni sem liggja um Fossvogsdalinn, inn í Elliðaárdalinn, Nauthólsvík og víðar.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.