Miklaborg kynnir: Fallegt sex herbergja einbýlishús með auka íbúð í bakgarði. Um er að ræða 208,fm einbýli byggt árið 1986, þar af er auka íbúð skráð 37,9fm. Húsið skiptist í anddyri, salerni, rúmgóða stofu með mikilli lofthæð, eldhús, tvö stór hjónaherbergi, þrjú barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús og tæknirými, Útgengt í stóran garð úr stofunni, þar sem auka íbúð er, með eldhúsi, alrými og baðherbergi. Fallegur garður er fyrir framan hús ásamt stæðum.
-Bókið skoðun hjá Steini Andra í síma 775-1577 eða steinn@miklaborg.is-
Gengið er inn í flísalagt anddyri með miklu skápaplássi, inn af anddyri er salerni með flísum á gólfi og veggjum. Gangur þar sem tvö barnaherbergi með parket á gólfi, tvíbreiðum fataskápum og rúmgott hjónaherbergi með parket á gólfi, tvíbreiðum fataskáp og hurð út í garð tekur á móti þér. Flísalagt baðherbergi, sturta og ljós innrétting. Þvottahús með dúk á gólfi og vask. Eldhús með parket á gólfi og hvít innrétting. Frá gangi er rými með miklu skápaplássi þar sem inngengt er í herbergi með dúk á gólfi og lítið tæknirými.. Gengið er úr rúmgóðri stofu með aukinni lofthæð niður í stórt herbergi með dúk á gólfi og fataskáp. Frá stofu er gengið út í fallegan garð þar sem búið er að útbúa íbúð í bakhúsi með eldhúsi, alrými og baðherbergi með sturtu, dúkur á golfi og gott skápaplaáss.
Falleg eign í friðsælu hverfi sem vert er að skoða.
Fyrir nánari upplýsingar eða bóka skoðun:
Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða Steinn@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu









































| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 08.06.2026 Nánar | 208,5 m² | 718.945 kr. | 149.900.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 3. janúar 2012 | 41.605.000 kr. |