Fasteignasalan Hvammur 466 1600Brimnesvegur 10 Ólafsfirði - 3ja herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi og með sérinngangi - stærð 82,2
** Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega ** Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, gang, eldhús, búr, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og kaldageymslu.
Forstofa með dúk á gólfi. Úr forstofu er gengið inn á
gang þaðan sem gengði er inn í öll helstu rými eignar.
Eldhús, ljóst plastparket á gólfi, upprunaleg innrétting og ágætur borðkrókur.
Búr er inn af eldhúsinu með plastparketi á gólfi, hillum og opnanlegum glugga.
Stofa er með plastparketi á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru tvö, annað dúk á gólfi og hitt með plastparketi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, handlaug, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Þvottahús er við hliðina á forstofunni og þar eru flísar á gólfi.
Köld geymsla er til hliðar úr forstofunni undir tröppum efri hæðar, þar er ekki full lofthæð.
Annað- Stofa og stærra svefnherbergið eru þrepinu neðar en önnur rými í húsinu.
- Ekki er full lofthæð í eigninni.
- Norðurútveggur var endurbyggður fyrir nokkrum árum og sett ný forstofuhurð. Eftir er að ganga frá að innan.
- Kominn er tími á ýmislegt viðhald bæði að innan og utan.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.