Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Brimdal 5, 260 Reykjanesbæ.
Um er að ræða glæsilegt 4 herbergja, 161,3 fm. einbýlishús með bílskúr.
Staðsetningin er góð, í göngufæri við leik- og grunnskóla, almennings sundlaug, íþróttahús og fallega gönguleið við sjávarsíðuna.
Eignin skiptist í, anddyri, hol, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, bílskúr og sólpall.
Nánari lýsing:Húsið er skráð 134,1 og bílskúr 27,2.Komið er inn um
anddyri með flísum á gólfi, þar er stór fataskápur.
Stofa/borðstofa og eldhús eru í opnu björtu rými, úr stofu er útgengi út á stóran sólpall, þar er útigeymsla.
Eldhús hefur parket á gólfi, snyrtileg eldhúsinnrétting með granít á borðum og miklu skápaplássi, þar er ofn, uppþvottavél og helluborð.
Baðherbergið hefur flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, góð innrétting, ljósaspegill, handklæðaofn og sturta.
Svefnherbergin eru 3 talsins, öll með parket á gólfi.
Hjónaherbergið er rúmgott, þar er fataherbergi og sér baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er snyrtileg innrétting, sturta og upphengt salerni.
Þvottahús er rúmgott og hefur flísar á gólfi, góð innrétting með vask og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr er rúmgóður, þar er aksturshurð, útgönguhurð og geymsluloft.
Bílastæði er steypt með snjóbræðslu,
lóð er stór og afgirt.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangi es@es.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.