Fallegt og vel við haldið einbýlishús á einni hæð á eftirsóttum stað í nágrenni við miðbæ Hafnarfjarðar. Eignin er skráð alls 145,5 fm hjá HMS, þar af er íbúðarhluti 113,2 fm og bílskúr 32,3 fm. Að auki er glæsileg 21 fm sólstofa sem ekki er innifalin í skráðri fermetratölu, þannig að raunstærð eignarinnar er um 165,5 fm. Hér er um að ræða einstaklega snyrtilega og vel viðhaldna eign sem sameinar gott skipulag, rúmgóð rými og frábæra staðsetningu.Forstofa er rúmgóð og flísalögð með gólfhita og fataskápum. Innaf forstofu er þvottaherbergi, flísalagt með gólfhita, gluggum, innréttingu með vaski og vinnuborði.
Hol er parketlagt og tengir saman helstu rými hússins á þægilegan hátt.
Eldhúsið er rúmgott og bjart, með gluggum í tvær áttir og góðri borðaðstöðu, flísar á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og háfur.
Svefnherbergin eru tvö; hjónaherbergi með fataskápum og barnaherbergi, parket á gólfum.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað. Þar eru flísar og mosaík á gólfum og veggjum, handklæðaofn, vegghengt salerni, innrétting og flísalögð sturta með sturtugleri, gluggi.
Samliggjandi tvær stofur sem eru rúmgóðar og bjartar með gluggum í þrjár áttir. Rýmið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars möguleika á að útbúa auka svefnherbergi. Úr stofu er gengið í sólskála. Sólskálinn er parketlagður með gólfhita og tveimur útgöngum út í suðvestur og eykur verulega við notagildi eignarinnar.
Undir forstofu og þvottaherbergi er um 14 fm geymsla sem ekki er innifalin í skráðri fermetratölu eignarinnar.
Bílskúr er með göngudyrum og gluggum, hurðaopnari, hraðhleðslustöð, heitt og kald vatn.
Gluggar og gler á austurhlið hefur verið endurnýjuð, auk þess sem aðrir gluggar voru yfirfarnir og lagfærðir eftir þörfum, heildaryfirbragð eignarinnar er afar gott.
Lóðin er 678 fm og að stórum hluta afgirt. Þar eru hellulagðar og steyptar stéttar með hitalögnum við inngang hússins Einnig eru falleg malarbeð með gróðri, vel hirtur garður. Á lóðinni er jafnframt matjurtargarður og um 12 fm gróðurhús. Innkeyrsla fyrir framan bílskúr og stétt meðfram honum eru hellulagðar og með hitalögnum.
Að sögn eiganda þá hefur eignin tekið miklum endurbótum á undanförnum árum og hefur verið talsvert endurnýjuð að innan síðustu 15 ár. Þar má nefna uppfært eldhús með innréttingum og tækjum, endurnýjað baðherbergi, gólfefni og innihurðir. Þá voru klóaklagnir frá húsi að brunni og þaðan út í götu endurnýjaðar fyrir um 10 árum. Rafmagnstöflur hafa verið uppfærðar og einnig hefur verið farið í endurbætur á ofnum og neysluvatnslögnum að hluta.
Í stuttri fjarlægð er fjölbreytt þjónusta, góðir matsölustaðir og líflegt menningarlíf með fjölmörgum viðburðum í miðbæ Hafnarfjarðar.Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfastESS eignir
eignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is